Undirvalmynd

Húfa, kragi og vettlingar úr Balder

Húfa, kragi og vettlingar úr Balder

hufa, kragi vettlingarStærðir:

(2/6) 8 ára

Mál á húfu:

Höfuðmál: (43) 48 sm

Garn: Viking Balder

Hvítt nr. 402: 1 hespa
Grátt nr. 413: 1 hespa
Brúnt nr. 418: 1 hespa

Prjónar:

Hringprjónn 40 sm nr. 7 eða 8

Prjónfresta:

12 lykkjur slétt prjón á prjóna nr. 7 eða 8 = u.þ.b. 10 sm


Kragi

Byrjið efst. Fitjið upp með gráu á prjóna nr. 7 eða 8 (52) 60 lykkjur. Prjónið stroff, 1 slétt, 1 brugðin í hring og rendur þannig: *4 umf. grátt, 1 umf. brúnt, 4 umf. hvítt*. Endurtakið frá * til *. Prjónið á þennan hátt þar til kraginn mælist u.þ.b. (12) 15 sm. Aukið í 1 lykkju í öllum brugðnu lykkjunum og prjónið nú stroff, 1 slétt, 2 brugðnar, alls 4 umf. Aukið í 1 lykkju í öllum sléttum lykkjum og prjónið nú stroff, 2 sléttar, 2 brugðnar, alls 4 umf. Aukið í 1 lykkju í öllum brugðnu flötunum og prjónið nú stroff, 2 sléttar, 3 brugðnar. Prjónið þar til kraginn mælist (24) 30 sm. Fellið laust af með sléttum og brugðnum lykkjum. Brjótið kragann efst tvöfalt út á réttuna.

Húfa

Fitjið upp með gráu á prjóna nr. 7 eða 8 (52) 60 lykkjur. Prjónið stroff, 1 slétt, 1 brugðin, í hring u.þ.b. 3 sm (báðar stærðir). Prjónið slétt prjón í hring og rendur þannig: *1 umf. brúnt, 4 umf. hvítt, 1 umf. brúnt, 4 umf. grátt*. Endurtakið frá * til *. Prjónið þar til húfan mælist u.þ.b. (15) 18 sm. Takið úr með því að prjóna2 sléttar, 2 sléttar saman út umf. Prjónið 1 umf. án úrtöku. Takið úr í 2. hverri umf. með 1 lykkju færra á milli úrtaka í hvert skipti þar til það eru (26) 30 lykkjur eftir. Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman út umf. = (13) 15 lykkjur á prjóninum. Klippið frá, dragið bandið í gegnum lykkjurnar sem eftir eru og festið vel.

Vettlingar

Fitjið upp með brúnu á prjóna nr. 7 eða 8 (20) 24 lykkjur. Prjónið stroff, 1 slétt, 1 brugðin í hring, (6) 8 sm. Prjónið slétt prjón í hring. Prjónið þar til vettlingurinn mælist u.þ.b. (8) 11 sm. Setjið (3) 4 lykkjur á prjónanælu fyrir þumal og fitjið upp (3) 4 nýjar lykkjur fyrir aftan þær. Prjónið áfram slétt prjón í hring þar til vettlingurinn mælist u.þ.b. (4) 5 sm frá þumli. Setjið merki í báðar hliðar og takið úr með því að prjóna 2 snúnar slétt saman fyrir framan merki og 2 sléttar saman fyrir aftan merki. Takið úr á þennan hátt í hverri umf. þar til 4 lykkjur eru eftir. Klippið frá dragið bandið í gegnum lykkjurnar og festið vel. Þumall: Setjið lykkjurnar (3) 4 á prjóna nr. 7 eða 8 og takið upp (3) 4 lykkjur fyrir aftan þær + 1 lykkju í báðum hliðum = (8) 10 lykkjur á prjóninum. Prjónið slétt prjón í hring þar til þumallinn mælist u.þ.b. (4) 5 sm. Klippið frá dragið bandið í gegnum lykkjurnar sem eftir eru og festið vel.