Vesti úr Sisu garni
Stærðir:
(S) M (L) XL (XXL)
Mál á vesti:
Yfirvídd: (90) 98 (106) 114 (122) sm
Sídd: (52) 55 (58) 62 (62) sm
Garn: Sisu
Ljósbrúnt nr. 2543: (8) 9 (9) 10 (10) dokkur
Sjá litaspjald á tinna.is
Prjónar/heklunál/fylgihlutir:
Hringprjónn 60 eða 80 sm nr. 3
Heklunál nr. 2 ½
3 tölur
Prjónfesta:
27 lykkjur garðaprjón og 26 lykkjur hálfklukkuprjón
á prjóna nr. 3 = 10 sm
Garðaprjón: slétt á réttu, slétt á röngu
Fram- og bakstykki: Fitjið upp á prjóna nr. 3
(243) 265 (287) 307 (329) lykkjur og prjónið garðaprjón fram og til baka (= slétt á öllum prjónum). 1. prjónn er frá röngunni. Prjónið þar til vestið mælist (34) 36 (38) 40 (40) sm. Prjónið næsta prjón frá röngunni og fellið af fyrir handveg þannig: Prjónið (51) 55 (59) 63 (67) lykkjur (= framstykki), fellið af (22) 23 (25) 26 (27) lykkjur (= handvegur), prjónið (97) 109 (119) 129 (141) lykkjur (= bakstykki), fellið af (22) 23 (25) 26 (27) lykkjur (= handvegur), prjónið (51) 55 (59) 63 (67) lykkjur (= framstykki). Prjónið næsta prjón slétt og fitjið upp nýjar lykkjur fyrir ermar yfir affeldu lykkjunum þannig: Prjónið (51) 55 (59) 63 (67) lykkjur slétt, fitjið upp (45) 49 (53) 57 (61) lykkjur, prjónið (97) 109 (119) 129 (141) lykkjur, fitjið upp (45) 49 (53) 57 (61) lykkjur, prjónið (51) 55 (59) 63 (67) lykkjur = (289) 317 (343) 369 (397) lykkjur á prjóninum. Prjónið 5 prjóna slétt.
Fyrstu 10 lykkjurnar og síðustu 10 lykkjurnar eru kantlykkjur og eru prjónaðar slétt á öllum prjónum, svolítið fast.
Hálfklukkuprjón:
1. prjónn (réttan): Prjónið *1 slétt, 1 brugðin*. Endurtakið frá * til * endið á 1 sléttri.
2. prjónn: Prjónið *1 slétt í lykkjuna undir næstu lykkju (í lykkjuna frá fyrri prjóni), 1 brugðin*. Endurtakið frá * til *og endið á 1 sléttri í lykkjuna undir næstu lykkju. Endurtakið þessa 2 prjóna með hálfklukkuprjóni. Prjónið (4) 4 (4) 5 (5) sm hálfklukkuprjón og endið með 1. prjón frá réttunni.
Fellið af (34) 36 (38) 44 (48) lykkjur með jöfnu millibili þannig:
Stærð (S): Prjónið 10 kantlykkjur, 5 sléttar, 2 sléttar saman, *6 sléttar, 2 sléttar saman*. Endurtakið frá * til *, endið á 4 sléttum, 2 sléttar saman, 10 kantlykkjur.
Stærð M: Prjónið 10 kantlykkjur, 2 sléttar, 2 sléttar saman, *6 sléttar, 2 sléttar saman, 7 sléttar, 2 sléttar saman*. Endurtakið frá * til *, endið á 2 sléttum, 2 sléttar saman, 10 kantlykkjur.
Stærð (L): Prjónið 10 kantlykkjur, 7 sléttar, 2 sléttar saman, *6 sléttar, 2 sléttar saman, 7 sléttar, 2 sléttar saman*. Endurtakið frá * til *, endið á 6 sléttum, 2 sléttar saman, 10 kantlykkjur.
Stærð XL: Prjónið 10 kantlykkjur, 5 sléttar, 2 sléttar saman, *6 sléttar, 2 sléttar saman*. Endurtakið frá * til *, endið á 4 sléttum, 2 sléttar saman, 10 kantlykkjur.
Stærð (XXL): Prjónið 10 kantlykkjur, 2 sléttar, 2 sléttar saman, *6 sléttar, 2 sléttar saman*. Endurtakið frá * til *, endið á 3 sléttum, 2 sléttar saman, 10 kantlykkjur. = (255) 281 (305) 325 (349) lykkjur á prjóninum.
Allar stærðir: Prjónið 4 prjóna slétt = 3 garðar. Prjónið hálfklukkuprjón (3) 3 (3) 4 (4) sm. Endið á 1. prjón frá réttunni. Fellið af (42) 46 (48) 50 (54) lykkjur með jöfnu millibili þannig:
Stærð (S): Prjónið 10 kantlykkjur, 5 sléttar, 2 sléttar saman, *4 sléttar, 2 sléttar saman, 3 sléttar, 2 sléttar saman*. Endurtakið frá * til *, endið á 3 sléttum, 2 sléttar saman, 3 sléttar, 10 kantlykkjur.
Stærð M: Prjónið 10 kantlykkjur, 6 sléttar, 2 sléttar saman, *4 sléttar, 2 sléttar saman, 3 sléttar, 2 sléttar saman*. Endurtakið frá * til *, endið á 4 sléttum, 2 sléttar saman, 5 sléttar, 10 kantlykkjur.
Stærð (L): Prjónið 10 kantlykkjur, 1 slétt, 2 sléttar saman, *4 sléttar, 2 sléttar saman*. Endurtakið frá * til *, endið á 3 sléttum, 2 sléttar saman, 1 slétt, 10 kantlykkjur.
Stærð XL: Prjónið 10 kantlykkjur, 4 sléttar, 2 sléttar saman, *4 sléttar, 2 sléttar saman*. Endurtakið frá * til *, endið á 6 sléttum, 2 sléttar saman, 3 sléttar, 10 kantlykkjur.
Stærð (XXL): Prjónið 10 kantlykkjur, 4 sléttar, 2 sléttar saman, *4 sléttar, 2 sléttar saman*. Endurtakið frá * til *, endið á 6 sléttum, 2 sléttar saman, 3 sléttar, 10 kantlykkjur. = (213) 235 (257) 275 (295) lykkjur á prjóninum.
Allar stærðir: Prjónið 4 prjóna slétt = 3 garðar. Prjónið hálfklukkuprjón (3) 3 (3) 4 (4) sm. Endið á 1. prjón frá réttunni. Takið úr (38) 40 (46) 50 (50) lykkjur með jöfnu millibili þannig:
Stærð (S): Prjónið 10 kantlykkjur, 3 sléttar, 2 sléttar saman, *3 sléttar, 2 sléttar saman*. Endurtakið frá * til * endið á 3 sléttum, 10 kantlykkjur.
Stærð M: Prjónið 10 kantlykkjur, 7 sléttar, *3 sléttar, 2 sléttar saman*. Endurtakið frá * til * endið á 8 sléttum, 10 kantlykkjur.
Stærð (L): Prjónið 10 kantlykkjur, 5 sléttar, 2 sléttar saman, *3 sléttar, 2 sléttar saman*. Endurtakið frá * til * endið á 5 sléttum, 10 kantlykkjur.
Stærð XL: Prjónið 10 kantlykkjur, 4 sléttar, 2 sléttar saman, *3 sléttar, 2 sléttar saman*. Endurtakið frá * til * endið á 4 sléttum, 10 kantlykkjur.
Stærð (XXL): Prjónið 10 kantlykkjur, *4 sléttar, 2 sléttar saman, 3 sléttar, 2 sléttar saman*. Endurtakið frá * til * endið á 10 kantlykkjur. =(175) 195 (211) 225 (245) lykkjur á prjóninum.
Allar stærðir: Prjónið 4 prjóna slétt = 3 garðar. Prjónið hálfklukkuprjón (2) 2 (3) 3 (3) sm. Endið á 1. prjón frá réttunni. Takið úr (50) 58 (62) 76 (88) lykkjur með jöfnu millibili þannig:
Stærð (S): Prjónið 10 kantlykkjur, 2 sléttar, 2 sléttar saman, *1 slétt, 2 sléttar saman*. Endurtakið frá * til *, endið á 5 sléttum, 2 sléttar saman, 10 kantlykkjur.
Stærð M: Prjónið 10 kantlykkjur, *1 slétt, 2 sléttar saman*. Endurtakið frá * til *, endið á 1 sléttri, 10 kantlykkjur.
Stærð (L): Prjónið 10 kantlykkjur, 4 sléttar, 2 sléttar saman, *1 slétt, 2 sléttar saman*. Endurtakið frá * til *, endið á 3 sléttum, 2 sléttar saman, 10 kantlykkjur.
Stærð XL: Prjónið 10 kantlykkjur, 5 sléttar, 2 sléttar saman, 3 sléttar, *1 slétt, 2 sléttar saman, 2 sléttar saman*. Endurtakið frá * til *, endið á 3 sléttum, 2 sléttar saman, , 5 sléttar, 10 kantlykkjur.
Stærð (XXL): Prjónið 10 kantlykkjur, 3 sléttar, *1 slétt, 2 sléttar saman, 2 sléttar saman*. Endurtakið frá * til *, endið á 2 sléttum, 10 kantlykkjur. =( 125) 137 (149) 149 (157) lykkjur á prjóninum.
Allar stærðir: Prjónið 9 prjóna slétt. Fellið af frá röngunni = 5 garðar.
Frágangur og kantar að framan: Heklið með heklunál nr. 2 ½ 1 umf. krabbahekl (= fastapinnar heklaðir frá vinstri til hægri) meðfram köntunum að framan. Á hægri kant að framan eru hekluð 3 hnappagöt. Það efsta við hálsmálið, það neðsta, neðst við hálfklukkuprjónið og það síðasta mitt á milli. Hnappagat: Heklið 3 loftlykkjur og hoppið yfir 3 lykkjur. Saumið tölur í á móti.