Undirvalmynd

Trefill Stella úr Rozetta garni

Tinna_Stella_trefillStærð:

1 stærð

Garn: Rozetti Stella

Bleikt með glitþræði nr. 130-13: 2 dokkur

Prjónar:

Prjónar nr. 3 ½ og 4 ½

Þéttleiki pífanna í treflinum fer eftir hversu langt bil er á milli lykkja. Styttra bil gerir minni pífu. Mælt er með 1 – 2 ½ sm bili á milli, athugið þó að hafa alltaf sama bil á milli svo trefillinn verði jafn og fínn.

Haldið röngunni á bandinu að ykkur, fitjið upp 5 lykkjur á prjón nr. 3 ½ eins og lýst er á myndunum. Skiptið yfir á prjóna nr. 4 ½. Prjónið garðaprjón (prjónið hverja umf.) þar til dokkan er búin, geymið lykkjurnar á prjóninum. Fitjið upp 5 lykkjur á annann prjón og gerið hinn helminginn af treflinum eins. Saumið (með tvinna), prjónið eða heklið helmingana saman.

Tinna_Stella_trefill1Mynd 1

Snúið röngunni á bandinu að ykkur, takið upp lykkjur á prjóna nr. 3 ½

Mynd 2

Takið upp lykkjur með því að stinga prjóninum í bandið u.þ.b. 2 ½ sm frá kantinum á endanum á bandinu. Hafið 1 – 2 ½ sm á milli lykkja.

Mynd 3-5

Næsta umf. setjið bandið fyrir aftan prjóninn, notið hægri prjón og farið í gegnum fyrstu lykkju og takið upp lykkju á bandinu u.þ.b. 2 ½ sm frá og dragið lykkjuna í gegnum fyrstu lykkju.

Mynd 6

Hér er næsta skref að taka upp lykkju á bandinu.

Mynd 7

2 umf. á prjóninum.