Trefill í hálfklukkuprjóni úr Smart
Smart 100% ull fjöldi af dokkum:

Svart nr. 1099 2
Koksgrátt nr. 1088 2
Kitten mohair
Fjólublátt nr. 5355 2
Trefillinn er prjónaður úr þreföldu garninu, þ.e. einn þráður af hvorum lit í Smart og einn þráður af Kitten mohair.
Prjónar:
Hringprjónar eða tveir prjónar nr. 10
Hálfklukkuprjón:
1. prjónn (rangan): Slétt prjón.
2. prjónn (réttan): 1 slétt kantlykkja prjónið lykkjuna sem er fyrir neðan lykkjuna sem annars hefði verið prjónuð slétta (sleppið lykkjunni, sem venjulega hefði verið prjónuð, framaf vinstri prjóninum) = munsturlykkja, prjónið næstu lykkju brugðna endurtakið frá til en endið prjóninn á 1 munsturlykkju, 1 sléttri kantlykkju. Þessir tveir prjónar mynda hálfklukkuprjón.
Athugið, til að einfalda trefilinn má sleppa hálfklukkuprjóninu og prjóna 1 lykkju slétt 1 brugðin til skiptis allan tímann.
Fitjið upp 21 lykkju og prjónið hálfklukkuprjón eins og lýst er hér að ofan (eða 1 sl. 1 br) þar til garnið er næstum búið (eða trefill er u.þ.b. 160 sm) Fellið af með sléttum lykkjum. Festið kögur á endana, u.þ.b. 6 búnt á lengdina. Athugið að hafa garnið margfalt í kögrinu og fallegt er að hafa meira af Kitten mohair í kögrinu en Smart.
Hönnun: Auður Magndís