Þæfð röndótt taska úr Fritidsgarni 100% ull
Mál á tösku þegar lokið er við að þæfa hana. Breidd 26 sm. hæð 22 sm. Garn Fritidsgarni 100% ull.

Í töskuna fara 1 dokka gul nr. 2117, bleikt 4419, blátt 5924, dökkgrænt 8582, turkis 6733, svart 1099, lilla 5226, rauð 4120.
Hringprjónar 40 sm. nr. 5.5.
Heklunál nr. 6.
Prjónfesta 15 lykkjur sléttprjón 10 sm.
Fitjið upp 90 lykkjur með svörtu á hringprjón nr. 5.5.
Prjónið slétt prjón í hring, tvær umferðir með hverjum lit. Þið ákveðið sjálfar niðurröðun á litunum. Prjónið þar til stykkið mælist 35 sm. Fellið af fyrstu 45 lykkjurnar og haldið áfram með slétt prjón yfir hinar 45 lykkjurnar þar til lokið mælist 15 sm. en endið helst með svartri rönd. Fellið af. Felið endana og heklið fasta hekl með svörtu í kringum lokið.
Band: Fitjið upp 150 lykkjur með svörtu. Prjónið slétt prjón(garðar) 2 prjóna turkis, 2 prjóna með bleiku, 2 prjóna með bláu, 2 prjóna með gulu, og 1 prjón með svörtu + fellið af með sléttum lykkjum. Saumið bandið fast við töskuna við hliðina á lokinu.
Að þæfa: Þvoið við 40° hita í þvottavél á hraðkerfi fyrir venjulegan þvott. Athugið að útkoman getur verið mismunandi eftir vélum. Þæfingin verður þéttari eftir því sem meiri sápa er notuð og vatnið heitara. Ef þæfing er ekki nægileg eftir fyrsta þvott má þreifa sig áfram og endurtaka hann með heitara vatni. Notið enzymfrítt (biofrítt) þvottaefni eða grænsápu. Gott er að hafa fleiri flíkur í vélinni, t.d. einar eða tvennar vinnubuxur. Strekkið og formið töskuna eftir létta þeytivindu og leggið til þerris. Athugið: Notið venjulegt ullarprógram í þvottavél eða handþvott 30-40° ef taskan er þvegin aftur seinna. Við mælum með Uldvask þvottaefni.