Þæfð gjafaaskja
Garn: Fritidsgarn
Ljósgrár nr. 1032: 1 dokka
Grár nr. 1088: 1 dokka
Rauður nr. 4128: 1 dokka
( getur gert 3 öskjur í mismunandi litasamsetningu)
Prjónar:
Sokkaprjónar nr. 5 ½
Fitjið upp 24 lykkjur á tvo prjóna og prjónið garðaprjón 5umferðir.
6. umferð er prjónuð svona: 8 lykkjur garðaprjón, fellið 8 lykkjuraf (fyrir hanka) og 8 lykkjur garða. Í baka umferðinni aukiðum 8 lykkjur sem áður var fellt af.
Prjóna áfram garðaprjón 5 umferðir.
Skiptið yfir á 5 prjóna (12 lykkjur á prjón=48 lykkjur) ogprjónið slétt munstur (mynd) að eigi vali.
3 mynstur eru sýnd hér fyrir neðan en endilega leyfðuhugmyndafluginu að ráða.
Fellt af:
Prjónið tvær lykkjur slétt og fellið yfir tvær næstu lykkjur út umferðina,
Prjónið slétt eina umferð

Prjónið eina lykkju slétt og fellið yfir tvær næstu lykkjur út umferðina.
Prjónið slétt eina umferð
Prjónið eina lykkju slétt og fellið eina lykkju af út umferðina
Prjónið slétt eina umferð
Fellið af næstu umferðir þar til 4 lykkjur eru eftir á prjónunum. Þræðið bandið í gegnum lykkjurnar og gangið frá endunum.