Undirvalmynd

Teppi og púðar úr Alfa

Tinna_Teppi_pudarTeppi

Stærð

U.þ.b. 125 x 175 sm.

Garn: Alfa (85% ull, 15% mohair)

Kremað nr. 1012: 9 dokkur.
Grátt nr. 1042: 7 dokkur.
Grátt nr. 1053: 7 dokkur.
Koksgrátt nr. 1088: 9 dokkur.

Prjónar

Nr. 7.
Heklunál nr. 7.

Prjónfesta

13 lykkjur í sléttu prjóni á prjóna nr. 7 = 10 sm.

Prjónið ferninga eftir teikningu

Ferningur A (kremað nr. 1012): 10 stk.
Ferningur B (grátt nr. 1042): 9 stk.
Ferningur C (koksgrátt nr. 1088): 8 stk.
Ferningur D (grátt nr. 1053): 8 stk.
Saumið saman ferningana eins og teikningin sýnir. Heklið 1 umf. fastapinna í kringum teppið. Heklið því næst einn stuðul í hvern fastapanna en heklið aðeins fleiri stuðla í hornin þannig að kanturinn liggi vel.

Púðar

Stærð

U.þ.b. 50 x 50 sm.

Garn í báða púðana

Kremað nr. 1012: 2 dokkur.
Grátt nr. 1042: 8 dokkur.
Grátt nr. 1053: 2 dokkur.
Koksgrátt nr. 1088: 2 dokkur.

Einlitur púði með hjörtum

Fitjið upp 66 lykkjur með gráu nr. 1042 og prjónið ferning B tvisvar sinnum á hæð og breidd. Fellið af.
Prjónið annað stykki á sama hátt og saumið saman.

Fjórlitur púði

Prjónið tvö stykki af hverjum ferningi (A, B, C og D).
Saumið saman eins og ljósmyndin sýnir.

Tinna_Teppi_pudar1Tinna_Teppi_pudar2Tinna_Teppi_pudar3