Undirvalmynd

Taska úr Sisu og Funny pelsgarni

Prjónar/heklunál:
Hringprjónn 40 sm eða sokkaprjónar nr. 5.
Heklunál nr. 6 (fyrir snúruna).
1 tala.

Prjónfesta:
14 lykkjur með þreföldu garni = 10 sm á breidd.
Ef of laust er prjónað þarf fínni prjóna.
Ef of fast er prjónað þarf grófari prjóna.

Fitjið upp 40 lykkjur með 2 þráðum af Funny og 1 þræði af Sisu (= þrefalt garn) á lítinn hringprjón eða sokkaprjóna nr. 5. Prjónið í hring rendur þannig:
X 1 umferð slétt, 1 umferð brugðin, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðin (= 2 garðar), prjónið síðan 2 umferðir sléttar með aðeins 1 þræði af Sisu X. Endurtakið frá X til X. Prjónið þar til taskan mælist u.þ.b. 14 sm, þá er búið til hnappagat í umferð með 1 þræði af Sisu þannig: Prjónið 9 lykkjur, fellið af 2 lykkjur, prjónið 29 lykkjur. Næsta umferð: prjónið 9 lykkjur, fitjið upp 2 lykkjur í stað þeirra sem felldar voru af, prjónið 29 lykkjur (= 40 lykkjur). Prjónið frá X til X. Fellið af.
Frágangur:
Saumið saman botninn á töskunni. Saumið tölu á innanverða töskuna þannig að hún passi við hnappagatið. Heklið 1 loftlykkjusnúru með 3 þráðum af Funny og 2 þráðum af Sisu (= fimmfalt garn) með heklunál nr. 6. Heklið snúruna u.þ.b. 65 sm langa eða eftir óskum hvers og eins. Saumið snúruna fasta á töskuna.

Athugið:
Ef þið viljið prjóna húfuna er uppskriftin í Prjónablaðinu Ýr nr. 31 uppskr. nr.42