Skokkur úr mandarin Petit garni
Stærðir:
(2) 4 (6) 8 ára
Mál á skokk:
Yfirvídd: (62) 66 (69) 74 sm
Vídd neðst: (66) 71 (75) 80 sm
Sídd: (48) 53 (58) 63 sm
Garn: Mandarin petit
Bleikt nr. 4505: (2) 3 (3) 4 dokkur
Dökkbleikt nr. 4517: 1 dokka í allar stærðir
Hvítt nr. 1001: 1 dokka í allar stærðir
Blágrænt nr. 6803: 1 dokka í allar stærðir
Grænt nr. 8514: 1 dokka í allar stærðir
Gult nr. 2003: 1 dokka í allar stærðir
Sjá litaspjald á tinna.is
Prjónar/heklunál:
Hringprjónn 60 sm nr. 2 ½ og 3
Heklunál nr. 2 ½
Prjónfesta:
27 lykkjur slétt prjón á prjóna nr. 3 = 10 sm
Fitjið upp með bleiku á prjóna nr. 3 (180) 192 (204) 216 lykkjur og prjónið 6 umf. slétt prjón, 1 umf. brugðið (fyrir brotlínu, mælið sm alltaf frá brotlínu), 6 umf. slétt prjón. Setjið merki í báðar hliðar með (90) 96 (102) 108 lykkjur á hvoru stykki (fram- og bakstykki). Prjónið munstur A eftir teikningunni og takið úr í hliðunum þar sem sýnt er á teikningunni þannig: Prjónið 1 slétta, 2 sléttar saman, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir að merkinu, 2 snúnar slétt saman, 2 sléttar, 2 sléttar saman, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir að merkinu í hinni hliðinni, 2 snúnar slétt saman, 1 slétt. Ljúkið við munstur A. Prjónið munstur B. Prjónið síðan munstur C. Prjónið þar til skokkurinn mælist (35) 39 (43) 47 sm. Prjónið með bleiku í hring stroff, 1 slétt, 1 brugðin, jafnframt sem aukið er í með jöfnu millibili þar til það eru (202) 210 (226) 238 lykkjur á prjóninum = (101) 105 (113) 119 lykkjur á hvoru stykki. Prjónið stroff 2 sm. Skiptið skokknum við merkin í hliðinni og prjónið hvort stykki fyrir sig.
Framstykki
= (101) 105 (113) 119 lykkjur. Fyrsta og síðasta lykkja er prjónuð slétt á öllum prjónum. Prjónið (10) 10 (12) 12 lykkjur með stroffi (1 slétt, 1 brugðin), takið 1 lykkju óprjónaða, 2 sléttar, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. Prjónið þar til (13) 13 (15) 15 lykkjur eru eftir, prjónið 3 sléttar saman, prjónið eins og lykkjurnar segja til um út prjóninn. Prjónið til baka eins og lykkjurnar segja til um. Endurtakið úrtökuna á öðrum hverjum prjóni alls (6) 6 (7) 8 sinnum = (77) 81 (85) (87) lykkjur á prjóninum. Prjónið þar til skokkurinn mælist (43) 47 (51) 55 sm. Fellið af (39) 43 (43) 45 lykkjur í miðjunni fyrir hálsmál og prjónið hvora hlið fyrir sig. Fellið af við hálsmálið á öðrum hverjum prjóni (alltaf frá réttunni) þannig (hægri öxl): Prjónið þar til (13) 13 (15) 15 lykkjur eru eftir 3 sléttar saman, prjónið út prjóninn. Takið úr á þennan hátt frá réttunni þar til það eru (11) 11 (13) 13 lykkjur á prjóninum. Prjónið eins og lykkjurnar segja til um fyrir bönd yfir axlir þar til skokkurinn mælist (48) 53 (58) 63 sm. Setjið lykkjurnar á prjónanælu. Prjónið hina hliðina eins (vinstri öxl) en gagnstætt og takið úr frá réttunni þannig: Prjónið (10) 10 (12) 12 lykkjur, takið 1 lykkju óprjónaða, 2 sléttar, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
Bakstykki
= (101) 105 (113) 119 lykkjur. Fyrsta og síðasta lykkja er prjónuð slétt á öllum prjónum. Byrjið þannig: 2 snúnar slétt saman, prjónið stroff þar til 2 lykkjur eru eftir, 2 sléttar saman = (99) 103 (111) 117 lykkjur á prjóninum. Prjónið og takið úr eins og á framstykkinu alls (6) 6 (7) 8 sinnum = (75) 79 (83) 85 lykkjur á prjóninum. Prjónið þar til skokkurinn mælist (45) 50 (54) 59 sm. Fellið af (41) 45 (45) (47) lykkjur í miðjunni fyrir hálsmál og prjónið hvora hlið fyrir sig. Prjónið og takið úr eins og á framstykkinu þar til það eru (11) 11 (13) 13 lykkjur á prjóninum. Prjónið þar til skokkurinn mælist (48) 53 (58) 63 sm. Setjið lykkjurnar á prjónanælu. Prjónið hina hliðina eins.
Frágangur
Prjónið saman axlirnar.
Kantur á hálsmál og handveg
Heklið takka með bleiku á heklunál nr. 2 ½ meðfram handveginum og hálsmálinu þannig: Festið bandið með 1 keðjulykkju, *heklið 3 loftlykkjur, 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju, hoppið yfir 3 lykkjur, 1 keðjulykkja í næstu lykkju*. Endurtakið frá * til *.

