Undirvalmynd

Skokkur úr Balder

skokkurStærðir:

(S) M (L)

Mál á skokk:

Yfirvídd: u.þ.b. (87) 90 (97) sm
Sídd: u.þ.b. (76) 78 (80) sm

Garn: Viking Balder

Svart nr. 403: u.þ.b. (6) 7 (7) hespur
Grátt nr. 413: u.þ.b. 2 hespur allar stærðir
Hvítt nr. 402: u.þ.b. 1 hespa allar stærðir

Prjónar:

Hringprjónn 80 sm nr. 7


Prjónfesta:

skokkur112 lykkjur slétt prjón á prjóna nr. 7 = u.þ.b. 10 sm Fitjið upp með svörtu á prjóna nr. 7 (152) 160 (168) lykkjur. Prjónið stroff, 2 sléttar, 2 brugðnar, 3 sm (allar stærðir). Setjið merki í báðar hliðar með (76) 80 (84) lykkjur á hvoru stykki. Setjið merki í miðju að framan og í miðju að aftan með (38) 40 (42) lykkjur á milli merkja. Prjónið slétt prjón í hring og takið úr 2 lykkjur við hvert merki með því að prjóna 2 snúnar slétt saman fyrir framan merki og 2 sléttar saman fyrir aftan merki. Takið úr á þennan hátt með u.þ.b. 7 sm millibili alls 6 sinnum = (104) 112 (120) lykkjur. Prjónið þar til skokkurinn mælist u.þ.b. (50) 52 (53) sm. Fellið af 8 lykkjur í báðum hliðum fyrir handveg (4 lykkjur báðum megin við merki í hliðunum). Fitjið upp með svörtu 56 lykkjur fyrir ermi (yfir affeldu lykkjunum) í báðum hliðum = (200) 208 (216) lykkjur í umf. Prjónið munstur eftir teikningu og takið úr eins og teikningin sýnir = (75) 78 (81) lykkja á prjóninum þegar munstri er lokið. Takið úr með jöfnu millibili þar til það eru (60) 60 (64) lykkjur á prjóninum. Prjónið með gráu, stroff, 2 sléttar, 2 brugðnar þar til kraginn mælist u.þ.b. 20 sm. Fellið laust af. Brjótið kragann tvöfalt út á réttuna.

Handvegur

Takið upp með svörtu á prjóna nr. 7 u.þ.b. 64 lykkjur utan um handveginn. Prjónið stroff, 2 sléttar, 2 brugðnar, 5 sm. Fellið af. Prjónið hinn handveginn eins.