Sjal úr Mandarin Petit
Stærð
50 X 150 cm
Garn: Mandarin Petit, einnig má nota Sisu
Ljósblátt nr. 5930 eða blátt nr. 5844: 4 dokkur
Sjá litaspjald á tinna.is
Heklunál:
Heklunál nr. 3
Skammstafanir:
ll. = loftlykkjur
kl. = keðjulykkjur
fp. = fastapinnar
st. = stuðlar
hst. = hálfstuðlar
tvöf.st.= tvöfaldir stuðlar
þref.st. = þrefaldir stuðlar
llb. = loftlykkjubogar
1 vængur: 2 st., 1 ll., 2 st. í sama llb.
Netahekl/netagat: *2 ll., hoppið yfir 2 ll., 1 st. í næstu lykkju*, endurtakið frá * til * að næsta væng eða þar til á að snúa við.
Allar umferðir byrja á 7 ll. (= 2 ll., 1 st., 2 ll.) þetta er 1 gat í netahekli.
Allar umf. enda á 1 st. í síðasta st. í umf., 2 ll., 1 þref.st. (= 1 nýtt netagat í enda umf.) en þegar snúið er við eftir væng er heklað: 1 vængur í síðasta væng, 2 ll., 1 þref.st.
Heklið 23 ll.
1. umf.: Heklið 1 st. í 8. ll. frá nálinni, *2 ll., hoppið yfir 2 ll., 1 st. í næstu ll.*. Endurtakið frá * til * þar til 3 ll. eru eftir, heklið 1 st,. 2 ll., 1 þref.st. í síðustu ll.
2. umf.: Snúið við með 7 ll. (= 2 ll., 1 st., 2 ll.), heklið væng í toppinn á þref. st. frá fyrri umf., *1 st. í næsta st., 2 ll.*, endurtakið frá * til *4 sinnum. Í næsta st. er heklað 1 vængur, endið umf. með 1 st., 2 ll., 1 þref.st. í síðustu lykkju.
3. umf.: Snúið við með 7 ll., 1 st. í toppinn á þref.st. frá fyrri umf., 2 ll., 1 st. í næsta st., heklið 1 væng í vænginn frá fyrri umf., 1 st. í næsta st., *2 ll., 1 st. í næsta st.*. Endurtakið frá * til * að næsta væng, 1 vængur í vænginn frá fyrri umf., 1 st. í næsta st., 2 ll., 1 st. í síðasta st., 2 ll., 1 þref.st. í sama síðasta st. Snúið vð með 7 ll.
Haldið áfram að hekla á þennan hátt. Í hvert sinn sem komin eru 5 ný netagöt er heklaður nýr vængur í næsta netagat.
Heklið þar til það eru 61 umferðir í sjalinu.
Kantur utan um sjalið
Heklið í bogana sem mynduðust þegar snúið var við á köntunum.
Byrjið á öðrum endanum.
1. umf.: Heklið 2 fp. í fyrsta boga, heklið 3 fp. í hvern boga meðfram allri hliðinni. Heklið 2 fp. í hvern boga neðst á sjalinu, nema í gatið neðst í miðjunni eru heklaðir 3 fp. Heklið 3 fp. í hvern boga meðfram hinni hliðinni og endið á 2 fp. í síðasta boga. Snúið við með 1 ll.
2. umf.: 1 fp. í fyrstu lykkju, *3 ll., hoppið yfir 1 fp., 1 fp. í næstu lykkju*. Endurtakið frá * til * 2 sinnum, heklið 7 ll., hoppið yfir 3 fp., 1 fp. í næstu lykkju.** Endurtakið frá * til ** þar til 6 fp. eru eftir, endið umf. á (3 ll,. hoppið yfir 1 fp., 1 fp. i næstu lykkju) 3 sinnum. Snúið við.
3. umf.: 1 kl. í fyrsta llb., 1 fp. í sama boga, 3 ll., 1 fp., í næsta boga, 3 ll., 1 fp. í næsta boga, *3 ll., 7 st. í stóra bogann, 3 ll., 1 fp. í næsta boga, 3 ll., 1 fp. í næsta boga, 3 ll., 1 fp. í næsta boga.* Endurtakið frá * til * út umf. Snúið við.
4. umf.: 1 kl. í fyrsta llb., 1 fp. í sama boga, 3 ll., 1 fp., í næsta boga, *3 ll., heklið 1 st. í hvern af 7 st., en heklið 1 ll., á milli allra st., 3 ll., hoppið yfir 1 boga, 1 fp. í næsta boga, 3 ll., 1 fp. í næsta boga*. Endurtakið frá * til * út umf.
5. umf.: 1 kl. í fyrsta boga, 1 fp. í sama boga, *3 ll., í hvern af fyrstu 6 st. er heklað: 1 st. í st., 3 ll., 1 fp.í fyrstu ll. (takki), heklið 1 st. í 7. st. Heklið 3 ll., hoppið yfir 1 llb. 1 fp. í næsta boga.* Endurtakið frá * til * út umf.