Undirvalmynd

Poncho úr Alfa

Poncho
Stærðir: (S) M (L)
Mál á poncho:
Sídd fyrir utan hálsmál og kögur: u.þ.b. (43) 45 (47) sm.
Garn: Alfa.
Grænt nr. 9535: (8) 8 (9) dokkur.
Prjónar:
Hringprjónar, 40 sm  nr. 6 og 60 til 80 sm nr. 7.
Prjónfesta:
13 lykkjur slétt prjón á prjóna nr. 7 = 10 sm.

Byrjið efst á hálsmálinu. Fitjið upp (60) 64 (68) lykkjur á lítinn hringprjón nr. 6. Prjónið stroff, 2 sléttar, 2 brugðnar, 18 sm, aukið í 4 lykkjur með jöfnu millibili í síðustu umferðinni = (64) 68 (72) lykkjur. Skiptið nú stykkinu í 4 hluta með því að setja merki í 1. lykkju = miðja á baki, í (17.) 18. (19.) lykkju = önnur öxlin, í (31.) 32. (33.) lykkju = miðja að framan, í (45.) 46. (47.) lykkju = hin öxlin. Það eru nú 4 merki og (15) 16 (17) lykkjur á milli þeirra. Skiptið yfir á prjóna nr. 7 og prjónið slétt prjón í hring. Aukið í 1 lykkju báðum megin við hvert merki (takið upp þráð á milli 2 lykkna og prjónið lykkjuna snúna slétta = 1 lykkja aukin í). Endurtakið þessa aukningu í 2. hverri umferð samtals (7) 7 (8) sinnum = (120) 124 (136 lykkjur. Síðan er aukið í við merkilykkjunar í 4. hverri umferð 5 sinnum = (160) 164 (176) lykkjur. Aukið nú í bara að framan og að aftan í 4. hverri umferð þar til ponchoið mælist fyrir miðju að framan (fyrir utan hálsmál) (43) 45 (47) sm eða eins og hver óskar. Fellið hæfilega laust af. Klippið u.þ.b. 25 sm langa þræði í kögur (12 sm tilbúið) og hnýtið einn þráð í hverja lykkju neðan á ponchoið. Pressa má mjög létt yfir ponchoið eða leggja það í rétt form milli rakra handklæða og láta þorna.