Peysa úr Smart garni
Stærðir:
(2) 4 (6) 8 (10) ára
Mál á peysu:
Yfirvídd: (64) 68 (72) 76 (80) sm
Sídd u.þ.b.: (37) 41 (45) 49 (52) sm
Garn: Smart
Blátt nr. 5936: (6) 6 (7) 8 (9) dokkur
Sjá litaspjald á tinna.is
Prjónar/heklunál/fylgihlutir:
Hringprjónn 60 sm nr. 3 og 4
Sokkaprjónar nr. 3 og 4
Heklunál nr. 3
Kaðlaprjónn
3 tölur
Prjónfesta:
21 lykkja á prjóna nr. 4 = 10 sm
Bolur
Fitjið upp á prjóna nr. 3 (152) 160 (172) 180 (192) lykkjur og prjónið stroff, 2 sléttar, 2 brugðnar, (4) 4 (4) 4½ (4½) sm. Í síðustu umf. er tekið úr með jöfnu millibili þar til það eru (134) 142 (152) 160 (168) lykkjur á prjóninum. Skiptið yfir á prjóna nr. 4 og prjónið slétt prjón. Prjónið þar til bolurinn mælist (22) 25 (28) 31 (34) sm. Skiptið fyrir handveg með því að fella af 2 lykkjur í byrjun umf. og 2 lykkjur í miðju umf. = (65) 69 (74) 78 (82) lykkjur á hvoru stykki (fram- og bakstykki). Prjónið hvort stykki fyrir sig.
Bakstykki
Fellið af fyrir handveg í byrjun hvers prjóns í báðum hliðum (2,1,1,1) 2,2,1,1 (3,2,1,1) 3,2,1,1,1 (3,2,2,1,1) lykkjur = (55) 57 (60) 62 (64) lykkjur á prjóninum. Prjónið þar til handvegurinn mælist (14) 15 (16) 17 (17) sm. Setjið (23) 25 (26) 28 (28) lykkjur í miðjunni á prjónanælu og prjónið hvora hlið fyrir sig. Fellið af í byrjun hvers prjóns frá handveginum (5,5,6) 5,5,6 (5,6,6) 5,6,6 (6,6,6) lykkjur. Prjónið hina hliðina eins.
Framstykki
Prjónað eins og bakstykkið þar til handvegurinn mælist (4) 5 (5½) 6 (6) sm. Setjið (5) 5 (6) 6 (6) lykkjur í miðjunni á prjónanælu fyrir klauf að framan og prjónið hvora hlið fyrir sig. Prjónið þar til framstykkið er (5) 5 (5½) 6 (6) sm styttra en bakstykkið. Fellið af í byrjun hvers prjóns við hálsmálið (3,2,2,1,1) 3,2,2,1,1,1 (3,2,2,1,1,1) 4,3,2,1,1 (4,3,2,1,1) lykkjur. Fellið af á öxl á sama stað og á bakstykkinu.
Ermar
Fitjið upp á prjóna nr. 3 (40) 44 (44) 48 (48) lykkjur. Prjónið stroff, 2 sléttar, 2 brugðnar, (4) 4 (4) 4½ (4½) sm. Í síðustu umf. er aukið í með jöfnu millibili þar til það eru (44) 46 (48) 50 (52) lykkjur á prjóninum. Skiptið yfir á prjóna nr. 4 og prjónið slétt prjón og munstur eftir teikningunni yfir lykkjurnar 26 í miðjunni á erminni. Jafnframt er aukið í 2 lykkjur í miðju undir ermi þegar ermin mælist (6) 6 (5) 6 (8) sm. Endurtakið útaukninguna með (2) 2 (2½) 3 (3) sm millibili alls (8) 9 (9) 10 (10) sinnum = (60) 64 (66) 70 (72) lykkjur á prjóninum. Prjónið þar til ermin mælist (23) 27 (31) 35 (39) sm. Fellið af 2 lykkjur í miðju undir ermi og prjónið ermina fram og til baka. Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun hvers prjóns í báðum hliðum (3,2,1,1,1,1,1,2,2,2) 3,2,1,1,1,1,1,1,2,2,3 (3,2,2,1,1,1,1,1,2,2,3) 3,2,2,1,1,1,1,1,1,2,2,4 (3,2,2,1,1,1,1,1,1,2,2,4) lykkjur. Fellið af lykkjurnar (26) 26 (26) 26 (28) sem eftir eru í einu lagi. Prjónið aðra ermi eins.
Frágangur
Saumið axlarsauminn. Takið upp á prjóna nr. 3 meðfram hálsmálinu (lykkjurnar á prjónanælunni meðtaldar, aukið í 1 lykkju á u.þ.b. 8. hverri lykkju yfir lykkjurnar á prjónanælunni) alls u.þ.b. (88) 92 (96) 100 (100) lykkjur. Lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff, 2 sléttar, 2 brugðnar, á réttunni á að vera 1 kantlykkja og 2 sléttar í báðum hliðum (að framan). Prjónið þar til stroffið mælist (12) 12 (13) 13 (14) sm. Fellið af.
Listar í klauf að framan
Prjónið á prjóna nr. 3 lykkjurnar á prjónanælunni í klaufinni í miðju að framan. Fitjið upp 1 nýja lykkju við fremra stykkið (vinstra megin) og á stærðum 2ja og 4ra ára er aukið í 1 lykkju í miðjunni = 7 lykkjur. Prjónið stroff (1 slétt, 1 brugðin). Frá réttunni á að vera 1 slétt í báðum hliðum. Takið 1. lykkju við opið óprjónaða svo kanturinn verði fallegur. Prjónið þar til listinn nær (aðeins strekkt) að miðjunni á kraganum. Fellið af. Takið upp lykkjur neðst í klaufinni fyrir aftan listann og prjónið annan lista eins sem nær (aðeins strekkt) að miðjunni á kraganum. Fellið af. Saumið listana við framstykkin.
Brjótið kragann tvöfalt inn á rönguna og saumið niður.
Heklið 3 hneslur með tvöföldu garni og saumið á vinstri hliðina á klaufinni. Saumið tölur í á móti. Saumið ermarnar í.
