Undirvalmynd

Peysa úr Alfa og Alfa glitter

Garn: Alfa 85% ull 15% mohair
Kremað nr. 1012: (7) 8 (8) 9 (10) 11 dokkur.
Ljósbrúnt nr. 2331: (1) 1 (2) 2 (2) 2 dokkur.
Bleikt nr. 4513 eða bleikt með silfurþræði nr. 4613: (1) 1 (1) 1 (1) 2 dokkur.
Dökkbrúnt nr. 3082: (1) 1 (1) 2 (2) 2 dokkur.

Stærðir: (10 – 12 ára) XS (S) M (L) XL
Mál á peysu:
Yfirvídd: (80) 86 (92) 98 (104) 110 sm.
Sídd fyrir miðju að framan: (49) 51 (53) 55 (57) 59 sm.
Ermalengd: :(40) 42 (44) 45 (46) 47 sm.

Prjónar:
Hringprjónn 80 sm nr. 6 og 7.
Sokkaprjónar nr. 6 og 7.

Prjónfesta:
13 lykkjur og u.þ.b. 17 umferðir slétt prjón með munstri = 10 x 10 sm.
Ef of laust er prjónað þarf fínni prjóna.
Ef of fast er prjónað þarf grófari prjóna.

Bolur: Fitjið upp með kremuðu á hringprjón nr. 6 (104) 112 (120) 128 (136) 144 lykkjur. Prjónið 4 umferðir í hring, 1 slétt, 1 brugðin. Skiptið yfir á prjóna nr. 7. Haldið áfram að prjóna slétt prjón í hring þar til bolurinn mælist (28) 30 (31) 33 (34) 36  sm, skiptið bolnum í fram og bakstykki þannig: Fellið af fyrstu 12 lykkjurnar = undir annarri erminni, prjónið (40) 44 (48) 52 (56) 60 lykkjur = bakstykkið, fellið af næstu 12 lykkjur = undir hinni erminni, prjónið síðustu (40) 44 (48) 52 (56) 60 lykkjurnar = framstykkið. Leggið til hliðar og prjónið ermar.
Ermar: Fitjið upp með kremuðu á sokkaprjóna nr. 6 (28) 28 (30) 30 (32) 32 lykkjur. Prjónið 4 umferðir í hring, 1 slétt, 1 brugðin. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr. 7. Haldið áfram að prjóna slétt prjón í hring þar til fullri lengd er náð. Athugið: Síðasta lykkjan í umferðinni er allan tímann prjónuð brugðin og það er aukin í 1 lykkja báðum megin við hana með u.þ.b. (4) 4 (4) 4 (4) 3 ½ sm millibili þar til (44) 46 (48) 50 (52) 54 lykkjur eru á prjóninum. Þegar ermin hefur náð uppgefinni lengd eru felldar af fyrstu 6 og síðustu 6 lykkjurnar = 12 lykkjur undir miðri erminni. Prjónið hina ermina eins.
Berustykki: Prjónið með kremuðu yfir lykkjurnar á bakstykkinu, prjónið aðra ermina inn í, prjónið lykkjurnar á framstykkinu, prjónið hina ermina inn í = (144) 156 (168) 180 (192) 204 lykkjur alls. Prjónið (1) 1 (2) 2 (3) 3 umferðir til viðbótar með kremuðu. Prjónið síðan munstur eftir teikningunni og takið úr eins og merkin sýna. Þegar munstrinu er lokið er fellt af, hæfilega laust, frá röngunni með bleiku og sléttum lykkjum. Saumið eða lykkið saman undir höndunum.
Notið Uld-vask þvottaefni