Peysa með stórum kraga úr Alfa
Stærðir: (XS) S (M) L (XL)

Yfirvídd: (90) 98 (106) 114 (122) sm.
Sídd: (59) 61 (63) 65 (67) sm.
Ermalengd: (39) 40 (40) 41 (41) sm.
Garn: Alfa
Grænt nr. 9535: (12) 13 (14) 15 (16) dokkur
Prjónar:
Hringprjónn 80 sm og sokkaprjónar nr. 6 og 7.
3 tölur.
Prjónanælur.
Prjónfesta:
13 lykkjur slétt prjón á prjóna nr. 7 = 10 sm.
Ef of laust er prjónað þarf fínni prjóna.
Ef of fast er prjónað þarf grófari prjóna.
Bolur: Fitjið upp á hringprjón nr. 6 (114) 120 (132) 138 (150) lykkjur. Prjónið stroff, 1 slétt og 2 brugðnar í hring, (8) 8 (10) 10 (10) sm. Skiptið yfir á prjóna nr. 7 og prjónið slétt prjón en aukið í (4) 6 (6) 8 (8) lykkjur í fyrstu umferðinni með jöfnu millibili = (118) 126 (138) 146 (158) lykkjur. Prjónið þar til bolurinn mælist (37) 38 (39) 40 (41) sm. Fellið af 6 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg = (53) 57 (63) 67 (73) lykkjur á hvorum hluta. Prjónið framstykki og bakstykki hvort fyrir sig.
Bakstykki: Fellið af 1 lykkju í báðum hliðum á hverjum prjóni 2 sinnum, síðan 1 lykkju í byrjun prjóns við handveg (2) 2 (3) 3 (3) sinnum = (45) 49 (53) 57 (63) lykkjur eftir. Prjónið áfram slétt prjón þar til fullri sídd er náð eða þar til handvegurinn mælist frá fyrstu úrtöku (20) 21 (22) 23 (24) sm. Fellið af.
Framstykki: Prjónið eins og bakstykkið þar til handvegurinn mælist (15) 16 (17) 18 (19) sm. Setjið (11) 11 (13) 15 (15) lykkjur í miðjunni á prjónanælu og prjónið hvora hlið fyrir sig. Fellið af í byrjun hvers prjóns við hálsmálið 2, 1, 1, 1, 1 lykkju í báðum hliðum. Prjónið þar til fullri sídd er náð, fellið af.
Ermar: Fitjið upp á sokkaprjóna nr. 6 (36) 36 (42) 42 (42) lykkjur og prjónið stroff, 1 slétt og 2 brugðnar í hring (8) 8 (10) 10 (10) sm. Skiptið yfir á prjóna nr. 7 og prjónið slétt prjón. Aukið í fyrstu umferð 2 lykkjur undir miðri erminni. Aukið síðan í 2 lykkjur undir erminni með u.þ.b. 2,5 sm millibili þar til (54) 56 (60) 62 (64) lykkjur eru á prjóninum. Prjónið þar til ermin mælist (39) 40 (40) 41 (41) sm. Fellið af 6 lykkjur undir erminni og prjónið fram og til baka, jafnframt eru felldar af 2 lykkjur í byrjun næstu 2 prjóna, síðan 1 lykkja í byrjun hvers prjóns þar til (30) 30 (32) 32 (32) lykkjur eru eftir. Héðan í frá er felld af 1 lykkja í báðum hliðum á hverjum prjóni þar til 20 lykkjur eru eftir (allar stærðir). Fellið af lykkjurnar sem eftir eru.
Frágangur: Saumið saman axlirnar.
Kragi: Takið upp lykkjur á prjóna nr. 6, frá vinstri öxl, yfir framstykkið og hringinn u.þ.b. (68) 70 (72) 74 (74) lykkjur. Fitjið upp nýjar lykkjur í lokin frá réttunni (að aftan) þannig að alls eru (79) 79 (85) 91 (91) lykkja á prjóninum. Þessar nýju lykkjur á að sauma bak við hinn endann á kraganum. Byrjið frá röngunni, takið fyrstu lykkjuna óprjónaða (reynið að hafa kantinn jafnan), * prjónið 1 slétt, 2 brugðnar*. Endurtakið frá * til * umferðina á enda. Endið á 2 brugðnum. Prjónið áfram á þennan hátt þar til kraginn mælist 20 sm. Fellið af. Saumið lykkjurnar af bakstykkinu undir framstykkið. Saumið 3 tölur eftir kantinum á kraganum að framan. Saumið ermarnar í.