Undirvalmynd

Peysa með glitþræði

Tinna_Tilsim_PeysaStærðir

(S) M (L) XL

Mál á peysu

Yfirvídd: u.þ.b. (82) 92 (102) 112 sm

Garn: Himalaya Tilsim

Brúnt með glitþræði: (5) 6 (7) 8 dokkur

Prjónar / fylgihlutir

Hringprjónn 60 eða 80 sm nr. 5 ½ 4 tölur Prjónfesta 15 lykkjur slétt prjón á prjóna nr. 5 ½ = 10 sm.

Bakstykki

Fitjið upp á prjóna nr. 5 ½ (60) 68 (76) 86 lykkjur. Prjónið stroff, 2 sléttar, 2 brugðnar út prjóninn endið á 2 sléttum. Prjónið stroff 15 prjóna (u.þ.b. 7 sm) allar stærðir. Skiptið í slétt prjón (slétt á réttu, brugðið á röngu). Prjónið þar til bakstykkið mælist u.þ.b. (32) 33 (36) 37 sm. Fellið af fyrir handveg (3) 4 (5) 7 lykkjur í byrjun næstu 2 prjóna. Fellið af 1 lykkju í byrjun hvers prjóns í báðum hliðum (2) 4 (5) 6 sinnum = (50) 52 (56) 60 lykkjur á prjóninum. Prjónið þar til bakstykkið mælist u.þ.b. (43) 47 (51) 53 sm. Prjónið stroffmunstur á öxlum, 2 sléttar, 2 brugðnar alls (8) 9 (10) 11 prjóna. Haldið áfram með stroffmunstrið. Fellið af á öxl (4) 4 (5) 5 lykkjur, prjónið út prjóninn. Næsti prjónn: Fellið af á öxl (4) 4 (5) 5 lykkjur, prjónið (8) 8 (10) 10 lykkjur, fellið af (24) 26 (26) 28 lykkjur fyrir hálsmál, prjónið út prjóninn. Prjónið hvora hlið fyrir sig. Fellið af á öxl (4,4) 4,4 (5,4) 5,5 lykkjur jafnframt sem felld er af 1 lykkja í byrjun fyrsta prjóns við hálsmálið (nú er búið að fella af allar lykkjurnar). Prjónið hina hliðina eins.

Framstykki

Byrjið á öðru framstykkinu. Fitjið upp á prjóna nr. 5 ½ (29) 34 (38) 42 lykkjur. Prjónið stroff, 2 sléttar, 2 brugðnar út prjóninn, endið á 2 sléttum. Prjónið stroff 15 prjóna (u.þ.b. 7 sm). Prjónið eins og bakstykkið þar til framstykkið mælist u.þ.b. (41) 43 (47) 48 sm. Fellið af fyrir hálsmál í byrjun hvers prjóns við kantinn að framan (6,1,1,1,1,1,1,1) 5,2,2,1,1,1,1,1 (4,2,2,2,2,2,2,2,2) 5,2,2,2,2,2,2,2,2 lykkjur. Prjónið þar til framstykkið mælist u.þ.b. (43) 52 (56) 58 sm. Prjónið stroffmunstur, 2 sléttar, 2 brugðnar eins og á bakstykkinu 8 prjóna (allar stærðir). Prjónið affellingar á öxl eins og á bakstykkinu. Prjónið hitt framstykkið eins en gagnstætt.

Ermar

Ermarnar eru prjónaðar fram og tilbaka. Fitjið upp á prjóna nr. 5 ½ (30) 34 (36) 40 lykkjur. Prjónið stroff eins og á fram- og bakstykki 15 prjóna (u.þ.b. 7 sm). Skiptið í slétt prjón og byrjið útaukningar:

Stærð S
Aukið í 1 lykkju í báðum hliðum, fyrir innan 1 kantlykkju, á 6. hverjum prjóni 12 sinnum.

Stærð M
Aukið í 1 lykkju í báðum hliðum, fyrir innan 1 kantlykkju, á 4. hverjum prjóni 7 sinnum og síðan á 6. hverjum prjóni 8 sinnum.

Stærð L
Aukið í 1 lykkju í báðum hliðum, fyrir innan 1 kantlykkju, á 6. hverjum prjóni 9 sinnum og síðan á 8. hverjum prjóni 4 sinnum.

Stærð XL
Aukið í 1 lykkju í báðum hliðum, fyrir innan 1 kantlykkju, á 8. hverjum prjóni 13 sinnum.

Allar stærðir
Prjónið þar til ermin mælist u.þ.b. (41) 46 (51) 52 sm. Fellið af fyrir ermakúpu. Fellið af (3) 4 (5) 7 lykkjur í báðum hliðum. Takið úr 1 lykkju í báðum hliðum (fyrir innan 1 kantlykkju) á öðrum hverjum prjóni (2) 4 (5) 6 sinnum. Takið úr 1 lykkju í báðum hliðum á hverjum prjóni (10) 11 (11) 11 sinnum. Takið úr 1 lykkju í báðum hliðum á öðrum hverjum prjóni (2) 4 (4) 4 sinnum. Fellið af 2 lykkjur í byrjun næstu 4 prjóna. Fellið af (8) 10 (12) 10 lykkjurnar sem eftir eru í einu lagi.

Frágangur

Saumið axlirnar, saumið ermasaumana og saumið ermarnar í.

Hálsmál

Snúið réttunni að ykkur. Takið upp lykkjur meðfram hálsmálinu; (6) 5 (4) 5 lykkjur á affellingunni á hægra kanti að framan, (0) 4 (4) 4 lykkjur á affellingunni fyrir hálmál, (25) 19 (19) 21 lykkjur á hliðinni, (32) 34 (35) 36 lykkjur yfir lykkjurnar á bakstykkinu, (25) 19 (19) 21 lykkjur yfir vinstri hliðinni, (0) 4 (4) 4 lykkjur á affellingunni fyrir hálsmál, og (6) 5 (4) 5 lykkjur á affellingunni á vinstri kanti að framan. Prjónið stroff, 2 sléttar, 2 brugðnar fram og til baka, jafnið lykkjufjöldann í fyrstu umf. svo stroffmunstrið gangi upp. Prjónið stroff u.þ.b. 4 sm. Fellið af laust með sléttum og brugðnum lykkjum.

Hægri listi að framan

Snúið réttunni að ykkur. Takið upp (74) 76 (82) 84 lykkjur meðfram hægri kanti að framan. Prjónið stroff, 2 sléttar, 2 brugðnar, 2 ½ sm endið frá réttunni. Fellið af u.þ.b. (18) 19 (20) 21 ½ sm neðst á listanum og haldið áfram með stroff yfir restina af listanum (u.þ.b. (23) 23 (25 ½) 25 ½ sm) 5 prjóna í viðbót. Fellið laust af með sléttum og brugðnum lykkjum.

Vinstri listi að framan

Snúið réttunni að ykkur. Takið upp (74) 76 (82) 84 lykkjur meðfram vinstri kanti að framan. Prjónið stroff, 2 sléttar, 2 brugðnar, 2 ½ sm, endið frá röngunni. Fellið af u.þ.b. (18) 19 (20) 21 ½ sm neðst á listanum og haldið áfram með stroff yfir restina af listanum (u.þ.b. (23) 23 (25 ½) 25 ½ sm) 2 prjóna í viðbót. Gerið hnappagöt þannig:

Stærðir S og M (42 lykkjur)
Prjónið *2 sléttar, sláið upp á, 2 brugðnar saman, (2 sléttar, 2 brugðnar) 2 sinnum*, endurtakið frá * til * 2 sinnum, 2 sléttar, sláið upp á, 2 brugðnar saman, 2 sléttar.

Stærðir L og XL (48 lykkjur)
Prjónið 2 sléttar, sláið upp á, 2 brugðnar saman, (2 sléttar, 2 brugðnar) 3 sinnum, sláið upp á, 2 sléttar saman, (2 brugðnar, 2 sléttar) 3 sinnum, sláið upp á, 2 brugðnar saman, (2 sléttar, 2 brugðnar) 3 sinnum, sláið upp á, 2 sléttar saman, 2 brugðnar. Prjónið 2 prjóna í viðbót stroff, 2 sléttar, 2 brugðnar. Fellið laust af með sléttum og brugðnum lykkjum. Saumið tölurnar á.