Undirvalmynd

Peysa, húfa, trefill og handstúkur úr Alpakka

Peysa, húfa, trefill og handstúkur úr Alpakka

Peysa:

Stærðir: (S) M (L) XL (XXL)
Yfirvídd: (92) 98 (104) 110 (118) sm.
Sídd: (58) 60 (62) 64 (66) sm.
Ermalengd: (42) 43 (44) 45 (46) sm.

Garn: Alpakka.
Ljósgrænt nr. 9435: (7) 8 (9) 10 (11) dokkur.

Prjónar/fylgihlutir:
Hringprjónn og sokkaprjónar nr. 3,5 og 4.
Merkihringir.

Prjónfesta:
22 lykkjur slétt prjón á prjóna nr. 4 = 10 sm.
Ef of laust er prjónað þarf fínni prjóna.
Ef of fast er prjónað þarf grófari prjóna.

Fitjið upp á prjóna nr. 3,5 (204) 216 (228) 240 (260) lykkjur. Prjónið í hring 4 umferðir stroff, 2 sléttar, 2 brugðnar. Skiptið yfir á prjóna nr. 4. Setjið merki í báðar hliðar = (102) 108 (114) 120 (130) lykkjur á hvorum hluta. Prjónið slétt prjón þar til bolurinn mælist (4) 5 (6) 7 (8) sm, takið úr 2 lykkjur í hvorri hlið þannig: Prjónið 1 slétta, 2 sléttar saman, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir að hliðarmerkinu, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið 2 sléttar, síðan 2 sléttar saman. Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir að hliðarmerkinu, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, 1 slétt. Endurtakið þessa úrtöku með u.þ.b. 4 sm millibili 4 sinnum til viðbótar. Þá mælist bolurinn u.þ.b. (20) 21 (22) 23 (24). Prjónið 4 sm og aukið þá aftur í 2 lykkjur á sömu stöðum og tekið var úr í hvorri hlið, með u.þ.b. 4 sm millibili samtals 5 sinnum = (102) 108 (114) 120 (130) lykkjur á hvorum hluta. Prjónið þar til bolurinn mælist (38) 39 (40) 41 (42) sm. Skiptið nú bolnum við hliðarmerkin og prjónið framstykki og bakstykki hvort fyrir sig.
Bakstykki: Fellið af fyrir handvegi í báðum hliðum (3, 2, 2, 1, 1, 1) 3, 2, 2, 2, 1, 1 (3, 2, 2, 2, 1, 1,1) 3, 2, 2, 2, 2, 1, 1 (3, 2, 2, 2, 2, 1, 1, 1) lykkju = (82) 86 (90) 94 (102) lykkjur. Prjónið þar til u.þ.b. 2 sm eru eftir af fullri sídd, fellið af (28) 30 (32) 34 (36) lykkjur í miðjunni fyrir hálsmál og prjónið hvora hlið fyrir sig. Fellið jafnframt af 2, 1 lykkju (allar stærðir) í byrjun hvers prjóns við hálsmálið = (24) 25 (26) 27 (30) lykkjur á öxl. Prjónið þar til bakstykkið mælist (58) 60 (62) 64 (66) sm. Fellið af.
Framstykki: Fellið af við handveg eins og á bakstykkinu, prjónið þar til 6 sm eru eftir af fullri sídd, fellið af (12) 14 (16) 18 (20) lykkjur í miðjunni fyrir hálsmál, prjónið hvora hlið fyrir sig og fellið jafnframt af í byrjun hvers prjóns við hálsmálið 4, 3, 2, 1, 1 lykkju (allar stærðir) = (24) 25 (26) 27 (30) lykkjur eftir á öxl. Prjónið þar til framstykkið hefur náð fullri sídd. Fellið af.
Ermar: Fitjið upp á prjóna nr. 3,5 (52) 52 (56) 56 (60) lykkjur. Prjónið stroff í hring, 2 sléttar, 2 brugðnar, 4 umferðir. Skiptið yfir á prjóna nr. 4 og prjónið slétt prjón. Aukið í 2 lykkjur undir miðri erminni með u.þ.b. (3) 3 (2 ½) 2 ½ (2 ½) sm millibili þar til (76) 80 (84) 88 (92) lykkjur eru á prjóninum. Prjónið þar til ermin hefur náð uppgefinni lengd, skiptið erminni undir miðju og prjónið fram og til baka og fellið jafnframt af fyrir ermakúpu þannig: Fellið af í byrjun hvers prjóns 4, 3, 2 lykkjur (allar stærðir), síðan 1 lykkju í byrjun hvers prjóns þar til (20) 22 (22) 24 (24) lykkjur eru eftir. Fellið síðan af 1 lykkju í byrjun og enda hvers prjóns 4 sinnum. Fellið af lykkjurnar sem eftir eru.
Frágangur: Saumið saman axlirnar.
Hálsmál: Prjónið upp lykkjur við hálsmálið, u.þ.b. 4 lykkjur á hverja 2 sm. Lykkjufjöldi á að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff, 2 sléttar, 2 brugðnar, 4 umferðir eða ef óskað er eftir hærra hálsmáli, þá eru prjónaðir u.þ.b. (7) 7 (8) 8 (8) sm. Fellið af með sléttum og brugðnum lykkjum.

Húfa

Stærðir: (S - M) L - XL

Garn: Alpakka, Chili.
Alpakka, dökkgrænt nr. 9273: (1) 2 dokkur.
Chili, ljósgrænt nr. 8857: 1 dokka í báðar stærðir.

Prjónar:
Hringprjónn 40 sm og/eða sokkaprjónar nr. 3 og 3,5.

Byrjið á öðru eyranu. Fitjið upp 7 lykkjur með dökkgrænu á prjóna nr. 3. Prjónið slétt prjón (slétt á réttu, brugðið á röngu) og aukið í 1 lykkju í báðar hliðar á hverjum prjóni þar til 21 lykkja er á prjóninum. Prjónið 4 umferðir án þess að auka í. Prjónið áfram slétt prjón og aukið í 1 lykkju í báðar hliðar á 2. hverjum prjóni þar til 27 lykkjur eru á prjóninum. Prjónið 2 umferðir án þess að auka í. Leggið til hliðar og prjónið hitt eyrað eins. Klippið ekki frá, prjónið eyrað, fitjið upp (44) 48 lykkjur, prjónið hitt eyrað, fitjið upp (14) 18 lykkjur = (112) 120 lykkjur alls. Prjónið nú slétt prjón í hring þar til húfan mælist fyrir miðju að framan (12) 15 sm. Takið úr þannig: *(12) 13 sléttar, 2 sléttar saman*. Endurtakið frá * til * alla umferðina = 8 lykkjur teknar úr. Prjónið 1 umferð án þess að taka úr. Næsta umferð: *(11) 12 sléttar, 2 sléttar saman*. Endurtakið frá * til * alla umferðina. Prjónið 1 umferð án þess að taka úr. Takið áfram úr á þennan hátt þar til 16 lykkjur eru eftir. Dragið lykkjurnar saman og festið vel. Prjónið utan um allan kantinn á húfunni með Chili þannig: Byrjið fyrir miðju að aftan og prjónið upp á prjóna nr. 3,5, 1 lykkju í hverja lykkju og u.þ.b. 5 lykkjur á hverja 2 sm eftir skáhliðunum. Passið að hafa nógu margar lykkjur neðst á eyrunum svo ekki myndist flái. Snúið við fyrir miðju að aftan og prjónið slétt til baka. Prjónið 1 garð og aukið jafnframt í 2 - 3 lykkjur neðst á eyrunum í fyrstu umferð. Fellið af frá röngunni með sléttum lykkjum og saumið saman fyrir miðju að aftan.