Lambhúshetta úr Smart
GARN:

Smart, 100% ull, Superwash (100 m. í 50 gr.)
AÐRAR TEGUNDIR SEM HENTA:
Peer Gynt, 100% ull (90 m í 50 gr.)
STÆRÐIR:
2-3-4/5 ára
Grænt nr: 8274 50-50-50 g
Blátt nr: 5846 50-50-50 g
Appelsínurautt nr. 3619 50-50-50 g
PRJÓNAR:
40 sm. hringprjónn nr. 2.5.
50 eða 60 sm hringprjónn nr. 3.5.
PRJÓNFESTA:
16 lykkjur í klukkuprjóni á prjóna nr. 3.5 eru 10 sm. Ef þið prjónið fastar en uppgefin prjónfesta, notið þá grófari prjóna. Ef þið prjónið lausar en uppgefin prjónfesta, notið þá fínni prjóna.
KLUKKUPRJÓN:
1. prjónn(ranga): 1 slétt (= kantlykkja), sláið bandi upp á prjóninn, takið eina lykkju óprjónaða fram af eins og brugðna lykkju, * 1 slétt, sláið bandi upp á prjóninn, takið eina lykkju óprjónaða fram af eins og brugðna lykkju *. Endurtakið frá *-*. 1 slétt (kantlykkja).
2. Prjónn(rétta): 1 slétt (kantlykkja), prjónið bandið og óprjónuðu lykkjuna slétt saman*. Sláið bandi upp á prjóninn, takið eina lykkju óprjónaða fram af eins og brugðna, prjónið bandið og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *. Endurtakið frá *-*. 1 slétt(= kantlykkja).
3. prjónn (ranga): 1 slétt(kantlykkja), sláið bandi upp á prjóninn og takið eina lykkju óprjónaða fram af eins og brugðna. * Prjónið bandið og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, sláið bandi upp á prjóninn og takið eina lykkju óprjónaða eins og brugðna *. Endurtakið frá *-*. 1 slétt (kantlykkja).
Endurtakið alltaf 2. og 3. prjón.
Tveir prjónar mynda eina umferð (lykkjur sem hægt er að telja í klukkuprjóni).
HETTAN:
Fitjið upp með bláu á hringprjón nr. 2.5 78-86-94 lykkjur. Prjónið 1 sl. 1 br. í hring 2.5 sm. Slítið frá. Setjið 4-5-5 fyrstu og 4-5-5 síðustu lykkjurnar á nælu = 70-76-84 lykkjur.
Skiptið yfir í grænt og hringprjón nr. 3.5. Byrjið að prjóna frá röngu. Fitjið upp eina lykkju á öðrum enda prjónsins þannig að önnur lykkjan er slétt á réttunni í báðum hliðum = 71-77-85 lykkjur. Prjónið fyrstu og síðustu lykkjuna slétta á réttu og röngu (=kantlykkjur). Prjónið klukkuprjón fram og til baka röndótt þannig:
8-10-12 prjónar grænt,
8 prjónar rautt,
4 prjónar grænt,
8 prjónar blátt,
6 prjónar rautt,
10 prjónar grænt,
6 prjónar blátt,
8 prjónar rautt,
4 prjónar grænt,
8 prjónar blátt,
8-10-12 prjónar grænt.
Þetta eru samtals 39-41-43 umferðir.
Fellið af með sléttum og brugðnum lykkjum. Saumið hettuna saman og aftan þannið að sléttu lykkjurnar standist á.
Gangið mjög vel frá öllum endum því að garnið er mjög mjúkt.
KRAGI:
Byrjið í miðju að aftan og prjónið upp með grænu á hringprjón nr. 2.5 eina lykkju við hvern hnút meðfram neðri brún hettunnar = 39-41-43 lykkjur vinstra megin. Prjónið lykkjurnar 8-10-10 upp á prjóninn og prjónið upp 39-41-43 lykkjur hægra megin = 86-92-96 lykkjur. Prjónið 1 sl. 1 br. í hring 2.5 sm.
Skiptið yfir í blátt og hringprjón nr. 3.5. Byrjið að prjóna frá röngu og prjónið klukkuprjón fram og til baka. Prjónið fyrstu og síðustu lykkjuna slétta á réttu og brugðna á röngu (=kantlykkjur).
ATHUGIÐ að prjóna lykkjurnar í klukkuprjóninu eins og þær koma úr slétta og brugðna prjóninu.
Prjónið röndótt þannig:
6 prjónar blátt,
4 prjónar rautt,
8 prjónar grænt,
6 prjónar blátt,
4 prjónar rautt,
10-12-14 prjónar grænt.
Fellið af mjög laust. Lykkjurnar í affellingunni mega vera allt að 1 sm. langar.
FRÁGANGUR:
Gangið sérstaklega vel frá öllum endum því að garnið er mjög mjúkt.
Saumið kragann saman að aftan.
Búið til rauðan og blán skúf. Heklið 2 bönd með grænu um 8 og 10 sm. löng, festið skúf í böndin og heklið keðjulykkjur til baka. Festið böndin í toppinn á lambúshettunni.
Þvoið í þvottavél við 40° ullarprógram.
Skráning í ókeypis Prjónaklúbb -
www.tinna.is