Undirvalmynd

Jakki með Laskúrtöku

Tinna_jakki_MandarinStærðir:

(XS) S (M) L (XL) XXL

Mál á jakka:

Yfirvídd: (82) 88 (94) 99 (105) 110 sm
Sídd, án hálsmáls: (48) 50 (52) 54 (56) 58 sm
Ermalengd: (45) 46 (47) 47 (48) 48 sm

Garn: Mandarin petit

Fjólublátt nr. 5226: (7) 8 (8) 9 (9) 10 dokkur
Sjá litaspjald á tinna.is

Prjónar/fylgihlutir:

Hringprjónn 40 og 60 sm nr. 2 ½ og 3
Sokkaprjónar nr. 2 ½ og 3
Kaðlaprjónn
(7) 8 (8) 8 (9) 9 tölur

Prjónfesta:

27 lykkjur slétt prjón á prjóna nr. 3 = 10 sm.

Fram- og bakstykki

Fitjið upp á prjóna nr. 2 ½ (218) 234 (250) 266 (282) 298 lykkjur og prjónið stroff, 2 sléttar, 2 brugðnar, fram og tilbaka þar til stroffið mælist 18 sm (allar stærðir). Skiptið yfir á prjóna nr. 3 og prjónið 2 brugðnar, munstur eftir teikningunni 2 sinnum yfir næstu 34 lykkjur (= 46 lykkjur þegar búið er að auka í á fyrsta prjóni í munstrinu), prjónið slétt prjón þar til 36 lykkjur eru eftir í hinni hliðinni, prjónið munstur eftir teikningunni 2 sinnum, 2 brugðnar. Nú eru 24 lykkjum meira á prjóninum. Prjónið á þennan hátt þar til jakkinn mælist (30) 31 (32) 33 (34) 35 sm. Setjið merki í báðar hliðar með (66) 70 (74) 78 (82) 86 lykkjur á hvoru framstykki og (110) 118 (126) 134 (142) 150 lykkjur á bakstykkinu. Fellið af 10 lykkjur í báðum hliðum fyrir handveg (5 lykkjur báðum megin við merki). Leggið til hliðar og prjónið ermar.

Ermar

Fitjið upp á prjóna nr. 2 ½ (56) 56 (60) 60 (64) 64 lykkjur og prjónið stroff, 2 sléttar, 2 brugðnar, í hring. Athugið, svo munstrið passi yfir stroffið, byrjið þá stroff-umf. þannig: (1 slétt, 2 brugðnar) 1 slétt, 2 brugðnar (1 brugðin) 1 brugðin (1 slétt, 2 brugðnar) 1 slétt, 2 brugðnar. Prjónið þar til stroffið mælist 8 sm (allar stærðir). Skiptið yfir á prjóna nr. 3 og prjónið þannig: (3) 3 (5) 5 (7) 7 sléttar, munstur eftir teikningunni 3 sinnum, endið á (3) 3 (5) 5 (7) 7 sléttum, jafnframt sem aukið er í 1 lykkju í enda umf. = merkilykkja sem er prjónuð brugðin upp alla ermina. Aukið í 1 lykkju báðum megin við merkilykkjuna í u.þ.b. 7. hverri umf. þar til það eru (103) 107 (111) 115 (121) 125 lykkjur á prjóninum. Prjónið þar til ermin mælist u.þ.b. (45) 46 (47) 47 (48) 48 sm. Fellið af merkilykkjuna og 5 lykkjur báðum megin við hana. Endið á sömu munsturumf. og á bolnum. Prjónið aðra ermi eins.

Laskúrtaka

Setjið ermarnar inn með bolnum og látið affeldu lykkjurnar standast á. Prjónið 2 prjóna slétt prjón og munstur eins og áður. Á næsta prjóni frá réttunni er gerð laskúrtaka þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir að fyrsta samskeyti (þar sem bolur og ermi mætast), 2 snúnar slétt saman, 2 sléttar saman, endurtakið úrtökurnar í öllum samskeytunum = 8 lykkjur teknar úr. Endurtakið laskúrtökuna á 2. hverjum prjóni (alltaf frá réttunni). Prjónið þar til jakkinn mælist (42) 44 (45) 47 (49) 50 sm. Setjið fyrstu og síðustu 16 lykkjurnar á prjónanælu fyrir hálsmál. Fellið síðan af í byrjun hvers prjóns við hálsmálið 4,3,2 lykkjur (allar stærðir) og síðan 1 lykkju þar til lykkjurnar á framstykkjunum eru búnar (affellingin fyrir hálsmálið mætir laskúrtökunni). Haldið áfram að fella af í byrjun hvers prjóns við hálsmálið 3 lykkjur í hvert sinn þar til fullri sídd er náð og haldið áfram með laskúrtöku þar sem hægt er. Prjónið þar til fullri sídd er náð. Fellið af.

Hálsmál

Byrjið á hægra framstykki og prjóna nr. 3, prjónið lykkjurnar 16 á prjónanælunni og fellið jafnframt af 4 lykkjur yfir kaðlamunstrinu, prjónið upp lykkjur utan um hálsmálið, prjónið lykkjurnar 16 á prjónanælunni á vinstra framstykki og fellið af 4 lykkjur yfir kaðlamunstrinu = u.þ.b. (130) 138 (150) 158 (170) 182 lykkjur. Skiptið yfir á prjóna nr. 2 ½ og prjónið stroff, 2 brugðnar, 2 sléttar, alls 11 prjóna. Fellið af með sléttum og brugðnum lykkjum.

Frágangur

Saumið saman undir höndum.

Vinstri listi að framan

Prjónið upp á prjóna nr. 2 ½ u.þ.b. 13 lykkjur fyrir hverja 5 sm meðfram vinstri kanti að framan. Prjónið perluprjón þannig: 1 slétt, 1 brugðin, út prjóninn. Næsti prjónn: Brugðið yfir sléttum lykkjum, slétt yfir brugðnum lykkjum. Prjónið alls 10 prjóna perluprjón. Fellið af með sléttum og brugðnum lykkjum frá röngunni.

Hægri listi að framan

Prjónaður eins og vinstri listi en á 5. prjóni eru gerð (7) 8 (8) 8 (9) 9 hnappagöt, það neðsta u.þ.b. 1 sm frá kantinum neðst og hin með jöfnu millibili. Hnappagat: Fellið af 2 lykkjur sem fitjaðar upp aftur á næsta prjóni.

Tinna_jakki_Mandarin1