Jakkapeysa úr Alpakka garni
Stærðir:
a(S) M (L) XL
Mál á jakka:
Yfirvídd: (94) 100 (106) 112 sm
Sídd: (58) 60 (62) 64 sm
Ermalengd: (41) 42 (43) 43 sm
Garn: Alpakka.
Kremað nr. 1012: (12) 13 (14) 15 dokkur.
Prjónar / Heklunálar / Fylgihlutir:
Hringprjónn 60 eða 80 sm eða 2 prjónar nr. 4. Heklunál nr. 3,5. Rennilás u.þ.b. (50) 50 (55) 55 sm Prjónanælur, merkihringir.
Prjónfesta:
Munstur: 28 munsturlykkjur á prjóna nr. 4 = 10 sm Slétt prjón: 22 lykkjur slétt prjón á prjóna nr. 4 = 10 sm
Munsturprjón = flétta yfir 2 lykkjur:
1. prjónn: *Prjónið 2. lykkju slétta fyrir framan fyrstu lykkju (án þess að taka hana af prjóninum), prjónið 1. lykkju slétta og takið báðar lykkjurnar af prjóninum. Haldið síðan áfram með 2. lykkju slétta fyrir aftan 1. lykkju (án þess að taka hana af prjóninum), prjónið 1. lykkju slétta og takið báðar lykkjurnar af prjóninum.*. Endurtakið frá * til * allan prjóninn.
2. prjónn: Prjónið brugðið til baka.
» Kantlykkjurnar eru prjónaðar sléttar á öllum prjónum.
Bakstykki
Fitjið upp á prjóna nr. 4 (128) 136 (144) 152 lykkjur og prjónið fram og til baka, 1. prjón brugðinn (= rangan). Prjónið síðan munsturprjón (sjá hér fyrir framan) yfir allar lykkjurnar FYRIR INNAN kantlykkjuna og 1 slétta lykkju í hvorri hlið. Prjónið 10 sm munsturprjón. Prjónið síðan slétt prjón (slétt á réttu, brugðið á röngu) og takið úr á 1. prjóni með jöfnu millibili þar til (104) 110 (118) 124 lykkjur eru á prjóninum. Prjónið slétt þar til bakstykkið mælist (38) 39 (40) 41 sm Fellið af 3 lykkjur við handveginn í hvorri hlið. Fellið síðan af 2 lykkjur (1) 1 (2) 2 sinnum og 1 lykkju (4) 5 (5) 5 sinnum = (86) 90 (94) 100 lykkjur. Prjónið nú slétt prjón þar til 2 sm eru eftir af fullri sídd. Setjið (36) 38 (40) 42 lykkjur í miðjunni á prjónanælu og prjónið hvora hlið fyrir sig. Fellið jafnframt af í byrjun hvers prjóns við hálsmálið, 3, 2 lykkjur (allar stærðir). Þegar fullri sídd er náð eru lykkjurnar (20) 21 (22) 24 sem eftir eru settar á prjónanælu fyrir axlir. Prjónið hina hliðina á sama hátt en gagnstætt.
M
D 0
M
D 0
Hægra framstykki
Fitjið upp á prjóna nr. 4 (66) 70 (74) 78 lykkjur og prjónið 1 prjón brugðinn. Prjónið síðan munstur fyrir innan fyrstu 4 lykkjurnar, sem eru prjónaðar sléttar á réttunni. Prjónið munstur þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 slétta, 1 kantlykkju. Prjónið brugðið til baka fyrir innan kantlykkjuna og prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir: 1 brugðin, 3 sléttar. Prjónið áfram eftir þessari skiptingu þar til kanturinn mælist 10 sm Prjónið á næsta prjóni 4 sléttar, 12 lykkjur munsturprjón, og slétt það sem eftir er af prjóninum og athugið, takið jafnframt úr á slétta hlutanum með jöfnu millibili þar til (58) 62 (66) 68 lykkjur eru eftir á prjóninum. Haldið áfram að prjóna slétt prjón fyrir innan 16 lykkjur við kantinn að framan. Prjónið þar til framstykkið mælist (38) 39 (40) 41 sm Fellið af við handveginn eins og á bakstykkinu = (49) 52 (54) 56 lykkjur. Prjónið þar til framstykkið mælist (50) 52 (55) 56 sm Fellið af 3 fyrstu sléttu lykkjurnar, setjið næstu 13 lykkjurnar á prjónanælu, prjónið út prjóninn og prjónið brugðið til baka. Fellið síðan af í byrjun prjóns við hálsmálið (4, 3, 2, 1, 1, 1, 1) 4, 3, 2, 2, 1, 1, 1, 1 (4, 3, 3, 2, 1, 1, 1, 1) 4, 3, 3, 2, 1, 1, 1, 1 lykkju. Þegar fullri sídd er náð eru lykkjurnar (20) 21 (22) 24 sem eftir eru settar á prjónanælu (axlir).
Vinstra framstykki
Fitjið upp og prjónið eins og hægra framstykki, en gagnstætt. Fyrstu 2 lykkjurnar á réttunni eru prjónaðar: kantlykkjan slétt og 1 slétt lykkja, prjónið munsturprjón þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóninum, og þær eru prjónaðar sléttar. Á röngunni er prjónað: 1 kantlykkja, 3 sléttar, brugðið þar til 1 lykkja er eftir, hún er prjónuð slétt. Haldið síðan áfram eins og á hægra framstykki. Fellið af við handveginn eins og á bakstykkinu. Fellið af 3 sléttu lykkjurnar við hálsmálið, setjið 13 lykkjur á prjónanælu og prjónið hálsmálsúrtökuna eins og á hægra framstykkinu en gagnstætt. Prjónið/ lykkið axlirnar saman.
Ermar
Fitjið upp á prjóna nr. 4 (64) 64 (68) 68 lykkjur og prjónið 1 prjón brugðinn. Prjónið síðan munstur prjón fyrir innan kantlykkjuna og 1 slétta lykkju í hvorri hlið. Prjónið beint upp þar til ermin mælist 10 sm Aukið í 1 lykkju í hvorri hlið fyrir innan 2 lykkjur þannig: 1 kantlykkja, 1 slétt, aukið í 1 lykkju, munsturprjón þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið í 1 lykkju, 1 slétt, 1 kantlykkja. Endurtakið þessa útaukningu á 8. hverjum prjóni þar til (84) 88 (96) 100 lykkjur eru á prjóninum. Athugið, prjónið nýju lykkjurnar með inn í munstið í hvert sinn þegar búið er að auka í 2 lykkjur. Prjónið beint upp þar til ermin mælist (41) 42 (43) 43 sm Fellið af fyrir ermakúpu þannig: Fellið af í byrjun hvers prjóns í hvorri hlið 3, 2 lykkjur og síðan 1 lykkju þar til (44) 44 (50) 52 lykkjur eru á prjóninum. Fellið af fyrstu 2 lykkjurnar í byrjun hvers prjóns 2 sinnum og síðan 3 lykkjur 2 sinnum. Fellið af síðustu (24) 24 (30) 32 lykkjurnar í einu lagi.
Hetta
Takið upp lykkjur á prjóna nr. 4 utan um hálsmálið þannig: Prjónið 13 munsturlykkjur af prjónanælunni, takið upp (27) 29 (30) 31 lykkju að bakstykkinu, prjónið (36) 38 (40) 42 lykkjur af bakstykkinu, takið upp (27) 29 (30) 31 lykkju og prjónið 13 munsturlykkjur af hinu framstykkinu = (116) 122 (126) 130 lykkjur alls. Prjónið brugðið til baka. Prjónið 3 sm slétt beint upp fyrir innan 13 munsturlykkjur í hvorri hlið. Setjið merki utan um 2 lykkjur í miðjunni að aftan. Aukið í 1 lykkju báðum megin við merktu lykkjurnar á 10. hverjum prjóni 4 sinnum = (124) 130 (134) 138 lykkjur. Prjónið síðan beint upp þar til hettan mælist (28) 29 (30) 30 sm Takið úr báðum megin við merkið þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir að merkinu, takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 1 slétta, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. Prjónið miðlykkjurnar 2, prjónið 2 sléttar saman. Takið úr á þenn an hátt á 4. hverjum prjóni samtals 3 sinnum. Skiptið lykkjunum á 2 prjóna, leggið réttu á móti réttu og prjónið lykkjurnar saman og fellið jafnframt af.
Frágangur
Saumið ermarnar í. Saumið hliðarsaumana. Brjótið 3 sléttu lykkjurnar við kantinn að framan niður á rönguna og saumið þannig að það sjáist ekki frá réttunni. Saumið rennilásinn í. Heklið 1 umferð af keðjulykkjum eftir kantinum að neðan, ermaköntum og eftir hettunni.