Húfa og trefill úr Balder
Mál á húfu:
Höfuðmál: (46) 50 sm
Garn: Viking Balder í húfu og trefil:
Bleikt nr. 465: 2 hespur í báðar stærðir
Fjólublátt nr. 489: 2 hespur í báðar stærðir
Svart nr. 403: 1 hespa í báðar stærðir
Prjónar/heklunál:
Hringprjónn 40 sm nr. 7 og 8
Sokkaprjónar nr. 7 og 8
Heklunál nr. 6
Prjónfesta:
12 lykkjur slétt prjón á prjóna nr. 7 = u.þ.b. 10 sm.
Húfa
Byrjið á hægra eyra. Fitjið upp á prjóna nr. 7, 2 lykkjur með fjólubláu og prjónið slétt prjón fram og tilbaka og aukið jafnframt i 1 lykkju í báðum hliðum á 2. hverjum prjóni þar til það eru 14 lykkjur á prjóninum. Prjónið þar til eyrað mælist 10 sm. Leggið til hliðar og prjónið vinstra eyra eins. Prjónið í hring á lítinn hringprjón nr. 8 og fjólubláu þannig: Prjónið annað eyrað, fitjið upp (20) 22 nýjar lykkjur (= framan á húfunni), prjónið hitt eyrað, fitjið upp (8) 10 nýjar lykkjur (= aftan á húfunni) = (56) 60 lykkjur á prjóninum. Prjónið 3 umf. yfir allar lykkjurnar. Skiptið í bleikt og prjónið þar til húfan mælist u.þ.b. (11) 12 sm (mælt í miðju að framan). Setjið (8) 10 merki í alla umferðina með (7) 6 lykkjur á milli merkja. Prjónið 2 lykkjur slétt saman fyrir framan hvert merki. Prjónið 1 umf. án úrtöku. Endurtakið úrtökuna i annarri hverri umf. með 1 lykkju færra á milli merkja þar til það eru (8) 6 lykkjur eftir í umf. Klippið frá, dragið bandið í gegnuum lykkjurnar sem eftir eru og festið vel. Heklið 1 umf. fastapinna utan um alla húfuna með svörtu og heklunál nr. 6. Hnýtið u.þ.b.3 teppahnúta í endann á hverju eyra með svörtu garni sem mælist u.þ.b. 12 sm.
Trefill
Byrjið neðst á treflinum með því að prjóna ferning þannig: Fitjið upp með fjólubláu á prjóna nr. 7, 13 lykkjur. Prjónið slétt fram og tilbaka (= garðaprjón, slétt á öllum prjónum) þar til ferningurinn mælist u.þ.b. 20 sm. Fellið af. Prjónið næsta ferning þannig: Fitjið upp með bleiku á prjóna nr. 7, 24 lykkjur. Prjónið slétt fram og tilbaka (garða) þar til ferningurinn mælist u.þ.b. 11 sm. Prjónið þessa ferninga til skiptis þar til prjónaðir hafa verið 8 ferningar (eða eins margir og óskað er í lengdina). Saumið ferningana saman á styttri hliðunum þannig: Byrjið á fjólubláum ferning neðst og saumið bleikan ferning við þannig að garðarnir á bleika ferningnum koma þvert á garðana á fjólubláa ferningnum( sjá teikningu). Saumið ferningana svona saman til skiptis, endið á bleikum ferningi. Heklið 1 umf. fastapinna með svörtu utan um allan trefilinn með heklunál nr. 6. passið að hekla ekki of fast eða laust. Hnýtið teppahnúta með svörtu í endana á treflinum u.þ.b. 10 sm langa.