Hekluð slá úr Mandarin Petit
Stærðir:

(2) 4-6 (8-10) ára.
Sídd fyrir miðju að framan fyrir utan kögur:
U.þ.b. (37) 45 (53) sm.
Mandarin Petit, fjöldi af dokkum:
Kremað nr. 1002: (3) 4 (5).
Bleikt nr. 4518: 2.
Blágrænt nr. 6705: 1.
Grænt nr. 8514: 1.
Gult nr. 2506: 1.
Heklunál:
Nr. 2,5.
Heklfesta:
6,5 munsturhópur á heklunál nr. 2,5 = 10 sm á breidd.
Útskýringar á hekli:
Ll. = loftlykkja.
St. = stuðull.
Kl. = keðjulykkja.
Ll.bogi = loftlykkjubogi.
Sláin er hekluð í 2 hlutum. Byrjið efst við hálsinn og fitjið upp fyrir allar stærðir 67 ll. með kremuðu.
Byrjið í 4. ll. og heklið 31 st. - 3 ll. (miðja að framan eða á baki) - 32 st. (fyrstu 3 ll. jafngilda 1 st.). Snúið við.
2. umferð: 4 ll. + 2 st. í allra fyrstu lykkjuna - 1 ll. X hoppið yfir 3 lykkjur - heklið 3 st. í næstu lykkju - 1 ll. X.
Endurtakið frá X til X þar til búið er að hekla 8 stuðlahópa - hoppið yfir 3 lykkjur fyrir framan ll.bogann í miðjunni- í hann eru heklaðir 3 st. + 3 ll. + 3 st. + 1 ll., heklið aftur frá X, endurtakið frá X til X umferðina á enda
og endið með 3 st. í allra síðustu lykkjuna = efst í 3 ll. í fyrri umferð. Snúið við.
3. umferð: 4 ll. + 2 st. í allra fyrstu lykkjuna - heklið 1 ll. + 3 st. í hvert bil að tvöfalda hópnum í miðjunni - 1 ll. – heklið
3 st. + 3 ll. + 3 st. utan um ll.bogann í miðjunni eins og í fyrri umferð - heklið 1 ll. + 3 st. í hvert bil umferðina á enda,
endið með 3 st. í allra síðustu lykkjuna.
Endurtakið 3. umferð allan tímann.
Þegar búið er að hekla (5) 7 (9) umferðir með kremuðu, eru heklaðar rendur með sama munstri: 1 umferð með blágrænu - 1 umferð með grænu - 1 umferð með gulu - 2 umferðir með bleiku. Byrjið aftur á kremuðu og endurtakið
munstrið 2 sinnum til viðbótar = u.þ.b. (37) 45 (53) sm fyrir miðju að framan þar sem aukið er út. Klippið frá.
Heklið hinn helminginn á sama hátt.
Frágangur: Saumið stykkin saman í hliðunum. Búið til kögur: Klippið u.þ.b. 16 sm langa enda úr bleiku, takið 4 enda,brjótið þá tvöfalda og hnýtið á milli stuðlahópanna neðan á slánni = 8 þræðir í hverju bili. Klippið kögrið jafnt, u.þ.b. 7 sm.
Ef vill er búin til snúra og hún er dregin í gegnum efstu gataröðina við hálsmálið.