Hekluð kringlótt taska úr Sisu og Funny pelsgarni
Stærð: u.þ.b. 15 sm í þvermál.
Funny pelsgarn
Blátt nr. 5930: 1.dokka
Sisu
Blátt nr. 5904: 1.dokka
Blómaperlur.
Heklunál:
Nr. 6.
Heklfesta:
14 fastapinnar = 10 sm á breidd.
Taskan er 2 kringlótir fletir heklaðir með fastapinnum sem eru saumaðir saman í hliðunum.
Heklið þannig: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál nr. 6 og tvöföldu garni (1 þráður Funny og 1 þráður Sisu) lokið hringnum með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkjuna. Heklið 12 fastapinna í hringinn. Heklið jafnframt yfir endann þannig að ekki þurfi að ganga frá honum á eftir. Togið aðeins í endann til að ekki myndist gat í miðjunni. Ljúkið hverri umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkjuna. Heklið 1 loftlykkju í byrjun hverrar umferðar og jafngildir hún fyrsta fastapinnanum.
1. umferð: Aukið í 1 lykkju í 2. hvern fastapinna = 18 fastapinnar (aukið í með því að hekla 2 fastapinna í sama fastapinnann).
2. umferð: Aukið í 1 fastapinna í 3. hverja lykkju = 24 fastapinnar.
3. umferð: Aukið í 1 fastapinna í 4. hverja lykkju = 30 fastapinnar.
4. umferð: Aukið í 1 fastapinna í 5. hverja lykkju = 36 fastapinnar.
5. umferð: Aukið í 1 fastapinna í 6. hverja lykkju = 42 fastapinnar.
6. umferð: Aukið í 1 fastapinna í 7. hverja lykkju = 48 fastapinnar.
Haldið áfram að auka í 6 fastapinna með jöfnu millibili þar til hringurinn mælist u.þ.b. 15 sm í þvermál. Klippið frá og dragið þráðinn í gegnum lykkjuna. Gangið frá endanum. Heklið annan hring á sama hátt.
Athugið: Það er hægt að minnka eða stækka töskuna eins og hver vill með því að láta umferðir og útaukningar fylgjast að.
Frágangur: Saumið töskuna saman frá réttunni með aftursting. (Það á ekki að snúa töskunni við). Skiljið eftir u.þ.b. 8 - 10 sm op efst. Það má sauma rennilás í opið ef vill. Heklið loftlykkjusnúru úr 3 þráðum af Funny og 2 þráðum af Sisu (það má gjarnan nota 1 hvítan og 1 bláan þráð af Sisu) = fimmfalt garn, með heklunál nr. 6. Heklið u.þ.b. 65 sm snúru. Saumið hana fasta á töskuna rétt við opið. Saumið blómaperlur hringinn utan um töskuna, sjá mynd.
Athugið:
Ef þið viljið prjóna húfuna er uppskriftin í Prjónablaðinu Ýr nr. 31 uppskr. nr.43