Heklað sjal/poncho úr Alfa
Ponchoið er það heklað í 2 þríhyrningum sem eru heklaðir saman í lokin. Ef hekla á sjal er aðeins heklaður annar

helmingurinn.
Garn: Alfa
Í poncho:
Bleikt nr. 4513: 11 dokkur.
Í sjal: u.þ.b. 5 - 6 dokkur.
Mál á poncho/sjali:
Lengd fyrir miðju að framan: U.þ.b. 68 sm.
Heklunálar:
Heklunál nr. 7
Heklfesta:
2 munstur með stuðlum og loftlykkjum í 3. umferð = 10 sm á breidd.
Skammstafanir:
ll. = loftlykkjur.
kl. = keðjulykkjur.
fp. = fastapinnar.
st. = stuðlar.
hst. = hálfstuðlar.
tvöf.st. = tvöfaldir stuðlar.
þref.st. = þrefaldir stuðlar.
Heklið 6 ll. lokið hringnum með 1 kl. í fyrstu ll. Snúið við með 6 ll.
1. umferð: Heklið 3 st. í hringinn, 3 ll. og tvöf.st. í sama hring. Snúið við með 6 ll.
2. umferð: Heklið 1 fp. í 1. ll.-bogann, 3 ll., hoppið yfir 3 st., 1 fp. í síðasta ll.-boga. Heklið 3 ll. + 1 tvöf.st. í sama hring. Snúið við með 6 ll.
3. umferð: 3 st. í fyrsta ll.-bogann, 3 ll., 1 fp. í næsta ll.-boga, 3 ll., 3 st. í næsta ll.-boga. Endið á 3 ll. + tvöf.st. í sama boga. Snúið við með 6 ll.
4. umferð: 1 fp. í fyrsta ll.-bogann, 3 ll., hoppið yfir 3 st., 1 fp. í næsta ll.-boga. Heklið 3 ll., 1 fp. í næsta ll.-boga, 3 ll., 1 fp. í næsta ll.-boga. Endið alltaf á 3 ll. + 1 tvöf.st. í sama/síðasta ll.-bogann (= aukið um 1 ll.-boga).
Heklið 3. og 4. umferð til skiptis, = það er aukið um 1 stuðlahóp í annarri umferðinni og um 2 ll.-boga í hinni umferðinni. Heklið með þessum aukningum u.þ.b. 35 umferðir (eða eins og hver óskar), heklið síðan 4 umferðir án þess að auka í. Það er fallegast að enda á umferð 4. Heklið hitt stykkið á sama hátt.
Frágangur: Heklið saman á öxlum með ll.-bogum þannig: Byrjið yst og heklið í áttina að hálsmálinu. 1 fp. í annað stykkið, 1 ll., 1 fp. í hitt stykkið, 1 ll. o.sv.frv. Skiljið eftir passlegt op fyrir höfuðið og heklið eins hinum megin.
Hálsmál: 1. umferð: Festið þráðinn með 1 kl., heklið 2 ll. (jafngildir 1 hst.), heklið u.þ.b. 53 hst. utan um hálsmálið (u.þ.b. 5 hst á hverja 5 sm). 2. umferð: Heklið kant þannig: 1 fp., *hoppið yfir 1 lykkju, 5 st. í næstu lykkju, hoppið yfir 1 lykkju, 1 fp. í næstu lykkju*. Endurtakið frá * til * alla umferðina. Lokið með 1 kl. í fyrsta fp.
Kögur: Klippið 30 - 35 sm langt kögur og hnýtið 2 þræði í hvern ll.-boga. Einnig mætti hekla blúndukant eins og er í hálsmálinu utan um sjalið.