Heklað Poncho úr Mandarin Petit
Ein stærð: Heklaður er einn renningur sem er u.þ.b. 44 cm á breidd x 144 cm á lengd.Síðan er önnur stutta hliðin saumuð

við langhliðina hinum megin.
Mandarin Petit nr. 1002: 5 - 6 dokkur.
Heklunál nr. 3.
Lykkjufjöldi þarf að vera deilanlegur með 7 + 6 lykkjur.
Fitjið upp 76 loftlykkjur = 70 + 6.
1. umferð: Snúið við með 3 ll. og heklið 1 st. í 4. ll. frá nálinni, hoppið yfir 2 l. - heklið 4 st., 1 ll., 1 st. í næstu lykkju - *3 ll.- hoppið yfir 3 l. - heklið 1 st., 1 ll., 1 st. í næstu lykkju - hoppið yfir 2 l. - 4 st., 1 ll., 1 st. í næstu lykkju*. Endurtakið frá * til * umferðina á enda. Endið með því að hoppa yfir 2 lykkjur, heklið 1 stuðul í síðustu lykkjuna. = 11 stuðlahópar eða skeljamunstur.
2. umferð: Snúið við með 3 ll. * Heklið 4 st., 1 ll., 1 st. í ll. í fyrsta stuðlahópnum, - 3 ll. - heklið 1 st., 1 ll., 1 st. í loftlykkjuna á milli 2 stuðla í fyrri umferð* Endurtakið frá * til * umferðina á enda. Endið með 1 stuðlahóp í síðasta stuðlahópinn, 2 ll. og 1 st. í efstu loftlykkjuna þar sem snúið er við.
Endurtakið síðan 2. umferð. Heklið 144 sm eða eins og hver óskar. Athugið: gott er að máta ponchoið áður en fullri lengd er náð svo hálsmálið verði hæfilega stórt. Ef heklað er of langt verður hálsmálið ef til vill of vítt. Saumið aðra stuttu hliðina við langhliðina hinum megin.