Undirvalmynd

Heklað Funny sjal

Nr. 19.
Heklað sjal.

Sídd á miðju baki:
U.þ.b. 55 sm.

Funny Lux Fjöldi af dokkum:
Svart/gulbrún  nr. 2494: 5.

Heklunál nr. 5 eða 5,5

Heklufesta:
5 ½ rúða eða gat á breidd og u.þ.b. 6 á hæð = 10 x 10 sm.

ll = loftlykkjur.
st = stuðull.
tvöf.st. = tvöfaldur stuðull.

Fitjið upp 6 ll. – heklið 1 st. í  fyrstu ll. Snúið við.
1. umf.: 6 ll. – 1 st. í st. fyrri umf. – 2 ll. – 1 st. í 4. ll af þeim 6 ll. á fyrri umf. – 2 ll. – 1 tvöf.st.  í sömu lykkju = 3 rúður í allt. Snúið við.
2. umf.: 6 ll. – 1 st. í tvöf.st. fyrri umf. – 2 ll. – 1 st. í næsta st. – 2 ll. – 1 st. í næsta st. – 2 ll. – 1 st. í 4. ll fyrri umf. – 2 ll. – 1 tvöf.st. í sömu lykkju = 5 rúður. Snúið við með 6 ll. og endurtakið á þennan hátt= aukið um eina rúðu í báðum hliðum í hverri umferð  þar til heklað hefur verið úr öllu garninu eða að þeirri stærð sem óskað er.