Undirvalmynd

Hárband úr Kitten Mohair

Prjónað úr tvöföldu garni. 

Kitten mohair:   Fjöldi af dokkum:

Svart nr. 1099  1

Fete gullgarn     1

Prjónfesta: U.þ.b. 11 lykkjur í sléttu prjóni með töföldu garni á prjóna nr. 7 = 10 sm.

Ef of fast er prjónað þarf grófari prjóna, ef of laust er prjónað þarf fínni prjóna.

Fitjið upp 56 lykkjur á prjóna nr. með einum þræði af Kitten mohair og einum af Fete gullgarni. Prjónið 10 sm slétt prjón í hring og fellið laust af.

Heklaður kantur neðaná: (má sleppa) Heklið með einum þræði af svörtu Kitten mohair á heklunál nr. 4,5 1 umf. fastapinna. Næsta umf.: *Heklið 3 fastapinna í einn fastapinna í fyrri umf., 1 keðjulykkja* endurtakið frá * til * og slítið frá.
Hönnun: Auður Leiknisdóttir