Funny eyrnaband og trefill
Hönnun: Lilja Kristbjörg Sæmundsdóttir

Fyrirsæta Telma Sól Bogadóttir
Stærð 1 - 2 ára
Auðveldlega er hægt að fitja upp fleiri lykkjur og stækka þannig uppskriftina.
Funny pelsgarn litanr.
Fjólublátt/með glitter nr.5126 1-2 dokkur.
eða Rautt með glitter nr.4219 1-2 dokkur.
Perlur:
Plastperlur blóm neon ca.65stk í poka eða Plastperlur hjörtu ca 100stk í poka.
Spyrjið um perlurnar í Tinnuverlunum.
Trefill: Fitjið upp 15 lykkjur á prjóna nr. 6 og prjónið slétt á réttu og röngu fram og til baka þar til trefillinn mælist u.þ.b. 65 sm. Fellið af. Festið nokkrar perlur á sitthvorn enda trefilsins.
Eyrnaband: Fitjið upp 10 lykkjur á prjóna nr. 6 og prjónið slétt á réttu og röngu fram og til baka þar til eyrnabandið mælist u.þ.b. 35 sm. Fellið af. Saumið endana saman. Rykkið miðjuna á eyrnabandinu saman og festið perlur þar á.