Undirvalmynd

Ermar

Ermar
Stærðir: S (M) L

Garn: Play it, eða Alfa eða Alfa Glitter
Glamour .
Garnið miðast við eina  flík.
Play it, nr.1990             2 dokkur
Alfa fæst í  21 litum       6 dokkur
Alfa Glitter fæst í 4 litum  6 dokkur
Glamour  silfur:              1 dokka.

Prjónar/heklunálar:
Hringprjónn 40 sm eða sokkaprjónar nr. 6 - 7, eftir því hvort fast eða laust er prjónað.
Heklunál nr. 3.

Fitjið upp 46 lykkjur á prjóna nr. 6 eða 7 og prjónið í hring 4 umferðir perluprjón( ein slétt, ein brugðin) og síðan slétt prjón þar til ermin mælist u.þ.b. 42 (44) 46 sm. Prjónið síðan slétt prjón fram og til baka yfir bakið (slétt á réttu, brugðið á röngu), u.þ.b. 46 (48) 50 sm og síðan seinni ermina í hring jafnlangt og þá fyrri og endið á 4 umferðum af perluprjóni. Fellið af. Heklið krabbahekl með Fete garni á heklunál nr.3  á alla kanta á ermunum.  Passið að hekla ekki of fast.